styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Við höfum frá upphafi sagt að við ætlum að gera það sem þarf til að lágmarka þann efnahagslega skaða sem atvinnulífið, fyrirtæki og eftir atvikum starfsfólk verður fyrir vegna heimsfaraldursins. Við höfum fylgt því sem okkur langar ekkert sérstaklega að fylgja, sem er veiran sjálf. Nokkrum sinnum höfum við á grundvelli gagna, vísbendinga og stöðu faraldursins gert ráð fyrir því að ákveðinn stuðningur gæti runnið út og að ekki þyrfti að endurvekja hann. Svo þegar gripið er til ráðstafana og það er talið mikilvægt þá þarf ýmist að framlengja gildistíma ákveðinna úrræða, hvort sem það eru lokunarstyrkir, viðspyrnustyrkir, tekjufallsstyrkir eða annað og einmitt þegar fram líða stundir og ný gögn koma til eru jafnvel smíðuð ný úrræði eins og þetta úrræði hér. Það er gert á grunni þeirra gagna og samtala sem við höfum átt þar sem það liggur fyrir að tjón þessa geira er meira og með öðrum hætti en annarra. Þá er gripið sérstaklega til þess. Ofan á það er síðan framhald af almennum aðgerðum með almennum skilyrðum þar sem geirar og fyrirtæki sem uppfylla þau almennu skilyrði geta sótt um. En þegar kemur að veitingarekstri þá erum við að smíða sérstakt úrræði einmitt vegna (Forseti hringir.) þess að staðan breytist og hún verður þyngri þar en annars staðar þegar tíminn er orðinn (Forseti hringir.) svona langur og takmarkanirnar hafa önnur áhrif þar en annars staðar.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á takmarkaðan ræðutíma og biður bæði fyrirspyrjendur og ráðherra að hafa það í huga að þegar fjórir óska eftir að veita andsvör þá er ræðutími aðeins ein mínúta í hvert sinn.)