152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.

232. mál
[11:54]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Svo ég leiðrétti það þá eru 23 inniliggjandi sjúklingar en ekki 24, svo það sé skjalfest. Tímabil úrræðisins er til og með marsmánuði og vonandi verða bara engin fyrirtæki sem uppfylla 20% tekjufallsskilyrði til að nýta það úrræði í mars vegna þess að við verðum komin í einhvern eðlilegri takt og meiri gang í bæði veitingarekstri og annars staðar. En til að vega og meta fyrirsjáanleika og skýr svör fyrir þá aðila sem eru í þessari erfiðu stöðu þá er tímabilið desember og út mars. En það hangir auðvitað á því að fyrirtækin hafi orðið fyrir tekjufalli. Ef mínar vonir standast og staðan verður þannig þá verður marsmánuður og þetta frumvarp vonandi ekki í miklu samhengi heldur verðum við komin á annan stað. Þær aðgerðir sem nú eru eru fram í byrjun febrúar og ekki ætla ég að fara að segja það hér hvað tekur við þar, svo mikið hef ég lært.