152. löggjafarþing — 25. fundur, 20. jan. 2022.
styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.
232. mál
[11:56]
Horfa
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Já, það er rétt að skilyrði um arðinn var í því frumvarpi sem nú hefur verið afgreitt en í því snerist málið um vörsluskatta. Hér er um að ræða styrki til fyrirtækja. Í því liggur einfaldlega munurinn. Í frumvarpi sem fjallar um vörsluskatta gilda önnur sjónarmið heldur en þegar um er að ræða almenna styrki að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.