styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.
Forseti. Þetta er áhugavert mál. Við erum nýbúin að glíma við mál þar sem var verið að fresta gjalddögum þessara sömu fyrirtækja. Í framsöguræðu ráðherra var tilkynnt að það ætti að bæta við flokki sem var líka bætt við í frumvarpinu sem var samþykkt á mánudaginn. Við erum því að tala um sama hóp fyrirtækja. Þar var fyrirtækjum gert kleift að fresta gjalddögum vegna slæmrar niðurstöðu. Hérna er verið að gera frumvarp um að borga þeim fyrir það rekstrartap.
Ég átta mig ekki alveg á hvernig það passar saman að gera hvort tveggja, væntanlega af því að hitt er af tekjunum sem væru þá engar. En ertu þá hvort eð er að borga einhver gjöld? Það er eitthvert jafnvægi hérna á milli sem ég held að þyrfti að útskýra aðeins betur. Dæmið gengur ekki alveg upp. Það gæti gert það en alla vega er það ekki útskýrt á þann hátt sem er alveg fullnægjandi fyrir mig. Þegar ég fer yfir tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar þá er hér farið yfir að veltan hafi dregist saman um 45 milljarða hjá fyrirtækjum í veitingarekstri samanborið við sömu mánuði ársins 2019. Það samsvarar nærri 30% samdrætti. Við erum að glíma við skilyrði þar sem er ákveðinn styrkur fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðilum sem eru með tekjufall á bilinu 20–60%. Þar af leiðandi ættu þeir flestir að falla þar fyrir innan. Svo eru skilyrði fyrir einhverja sem eru með meira en 60% tekjufall og fá þá 600.000 fyrir hvert stöðugildi. En þeir sem eru með akkúrat 19–20% missa alveg af lestinni. Það er áhugavert út af fyrir sig. Ég skil ekki af hverju þeir fá þá ekki bara hlutfallslega minna.
Hér er gerð grein fyrir því að úrræði stjórnvalda vegna faraldursins sem hafa nýst fyrirtækjum hafi verið 11 milljarðar í stuðningi frá hinu opinbera til að standa undir rekstrarkostnaði. Þannig hafa fyrirtækin t.d. fengið tekjufalls- og viðspyrnustyrki fyrir vel yfir 3 milljarða. Hérna er verið að bæta við 1,5 milljörðum. Það er ekki alveg skilgreint hvort þeir sem var bætt við á mánudaginn, þeir sem eru með veitingastaði og t.d. gistiaðstöðu, falli undir það sama, þessa 1,5 milljarða aukalega. Erum við þá að fá 3 milljarða í viðbót miðað við það sem hefur áður verið, 3 milljarða vegna tekjufalls- og viðspyrnustyrkja, ekki til alveg sömu aðila?
Sundurliðunin á þessu er 3 milljarðar í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, 5,5 milljarðar vegna atvinnuleysisbóta í skertu starfshlutfalli, um 0,6 milljarðar í ráðningarstyrki, ríflega 2 milljarðar í ríkistryggð lán, — kannski telur það jú með — 1 milljarður vegna ferðagjafar stjórnvalda sem var komið inn, lokunarstyrkir fyrir 0,6 milljarða sem fara til 57 kráa og skemmtistaða. Það er áhugavert að sjá töluna þarna. Þegar maður summar þetta upp þá erum við komin í í kringum 12–13 milljarða. Ef ríkistryggðu lánin eru tekin frá erum við í 10–11 milljörðum, sem summast kannski upp í þennan 11 milljarða kr. stuðning. Annars erum við í 12–13 milljörðum sem er ekki 11 milljarða kr. stuðningur. Það er ekki alveg ljóst hvernig allt dæmið gengur upp. Til viðbótar við þetta er síðan Hefjum störf sem er um 1,5 milljarðar sem færu væntanlega til þessara fyrirtækja ef 10% allra ráðninga fara þar í gegn. Þá ertu kominn upp í u.þ.b. 14 milljarða í stuðning við fyrirtæki í veitingarekstri. Gott og vel, það er þörf á þeim stuðningi o.s.frv. en ég er bara draga fram hvað er verið að rökstyðja í þessu frumvarpi. Sagt er að það sé 11 milljarða stuðningur en sundurliðunin dregur síðan fram stuðning upp á um 14 milljarða. Af hverju er þessi munur? Það er eitthvað sem nefndin gæti kannski klórað aðeins í og fengið útskýringar á. Kannski er eðlileg útskýring á þessu en ég sé hana alla vega ekki í greinargerðinni.
Svo er hér yfirferð yfir hvaða ákvarðanir stjórnvalda hafi haft áhrif á þennan vettvang, á þessi fyrirtæki, sem geri það að verkum að réttlætanlegt sé fyrir stjórnvöld að koma með einhvers konar mótvægisaðgerðir til að vega upp á móti þeim takmörkunum sem þessi geiri hefur orðið fyrir. Það er dálítið skrautlegt að sjá hvernig þetta lítur út. Þegar maður horfir í baksýnisspegilinn og pælir í því þá er hérna óöryggi, hérna er óvissa o.s.frv. Og hvernig laga stjórnvöld þessa óvissu? Jú, með því að byrja á því að aflétta öllum takmörkunum 25. júní 2021. Ástandið var þannig að það var allt í fína lagi og við afléttum öllu. Það var svona núllpunktur, upp á nýtt. Það varð til þess að allt fór í kaos aftur, kannski ófyrirsjáanlega en alla vega voru viðvörunarraddir til staðar þá. Einungis mánuði seinna var aftur gripið til takmarkana. Þar byrjum við í takmörkunum. Strax réttum mánuði seinna: Breyting. Aftur tæpum mánuði seinna, 15. september: Breyting. Rúmum mánuði seinna, 20. október: Breyting. Tæpum mánuði síðar, 10. nóvember: Breyting. Þremur dögum seinna: Breyting. Mánuði seinna, 23. desember: Breyting. Sama dag: Undanþága, breyting. Tæpum mánuði seinna, 15. janúar: Breyting. Á u.þ.b. mánaðarfresti eru stjórnvöld að flakka fram og til baka með takmarkanir á þessum vettvangi. Það er augljóst að slíkt starfsumhverfi er gríðarlega ófyrirsjáanlegt og stjórnvöld hjálpa ekki til. Í staðinn fyrir að leggja góða grunnlínu sem væri hægt að halda sig innan varðandi starfsemina er að mínu mati verið að flakka allt of mikið á allt of skömmum tíma með breytingar á þessu fyrirkomulagi, sérstaklega ef við tökum tillit til þess að rökin fyrir því að breyta einhverju á þessum vettvangi voru ekkert endilega nægilega mikil. Smitin sem voru að breytast voru ekkert endilega drifin áfram á þessum vettvangi heldur einhverjum öðrum vettvangi, t.d. í skólum, vissulega við mismunandi aðstæður og á mismunandi tíma en þau voru ekki dregin fram sem rök fyrir því að breyta til á vettvangi veitingastaða og skemmtistaða á hverjum tíma.
Þar liggur kjarninn í öllum aðgerðum stjórnvalda. Ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á stærra samhengi en bara sóttvörnum þarf að bæta við rökstuðning sóttvarnalæknis vegna sinna takmarkana og aukaáhrifa sem þær hafa og, eins og kom fram í andsvari hv. þm. Kristrúnar Flosadóttur, að það liggi fyrir umfangsmat á aðgerðum ríkisstjórnarinnar þegar farið er í þær. Það er allt í lagi að það sé ónákvæmt. Klassískt umkvörtunarefni sem ég fæ er að það sé svo flókið að gera það, að ekki sé hægt að gera það upp á nákvæmlega krónu. Það er aldrei neinn að biðja um það. Það er alltaf verið að biðja um mat enda er matið á þessu frumvarpi þegar allt kemur til alls um 0,5–2 milljarðar. Þetta er ansi stórt bil. Endanleg afkoma ríkisins mun að óbreyttu versna um 0,5–2 milljarða. Það er áður en þessum hópi er bætt við sem var gert á mánudaginn, í síðasta frumvarpi. Afkoman ætti þá að versna um 1–3 milljarða eða eitthvað svoleiðis. Þetta er ekki nákvæmt mat en þetta er mat sem við viljum fá.
Við viljum líka fá þetta þegar verið er að leggja til takmarkanir yfir höfuð. Það er ekki verið að biðja um eitthvað mikið nákvæmara en svona u.þ.b. einhvers staðar á þessu bili sem þýðir að við getum að einhverju leyti gert ráð fyrir því hvaða heildaráhrif þær hafa. Það skiptir máli hvort það sé í tugum eða hundruðum milljóna. Það skiptir máli hvort það sé í hundruðum eða þúsundum milljóna. Það er í raun eina viðmiðið sem við erum að spyrja um. Erum við að tala um eitthvað sem er í hundruðum milljóna talið eða erum við að tala um eitthvað sem er t.d. í þúsundum milljóna talið? Vinsamlegast gefið okkur einhvers konar sýn á það hvað við erum að miða við hérna.
Það er alveg áhugavert líka, eins og kom fram í andsvari hv. þm. Bergþórs Ólasonar, að miðað hafi verið við til og með mars, þó að ég taki ekki endilega undir ástæðuna fyrir því. Að sjálfsögðu virðist þetta vera einhvers konar svigrúm ef þetta skyldi framlengjast. Ef það skyldi framlengjast þá þyrftum við væntanlega að grípa til framhalds á þessum tekjufallsstyrkjum fyrr en síðar þó að ég voni að sjálfsögðu að svo verði ekki. Það á dálítið við í þessu kostnaðarmati sem er fjallað um í frumvarpinu þar sem er gert ráð fyrir 3 milljörðum en það verði líklega nærri 1,5 milljörðum. Svona mat er gott. Að mestu leyti finnst mér þetta bara vel unnið frumvarp.
Spurning hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur var t.d. mjög góð ábending. Spurningin um gildistímann var mjög góð. Og svo að ég hrósi sjálfum mér ekki of mikið þá hefur áður verið spurt um þrepaskiptinguna á styrkjunum. Af hverju er sérstök skipting við akkúrat 20%? Þú færð ekkert þegar þú ert með 19% en í rauninni fullan styrk á miðþrepinu þegar þú ert með 20% tekjufall. Það er eitthvað sem nefndin má tvímælalaust skoða. Ég veit ekki hvaða tíma nefndin fær til að vinna þetta. Ég held að það sé aðeins meira en síðast þegar það var smá dagsetningarvandamál. Ég vonast alla vega til þess að þinglega meðferðin verði vandaðri en þá.
Að öðru leyti er þetta bara ágætt. Það sést að þó nokkru leyti að það hefur myndast ákveðin þekking á viðbrögðum og þeim tækjum sem gripið er til. Fyrir utan það vantar síðan frá ríkisstjórninni og ég vonast eftir því í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar núna í vor að hún fari að útskýra fyrir okkur hvernig við ætlum að vaxa út úr þessum skuldum sem við erum að stofna til með öllum þessum styrkjum. Það eru vissulega ákveðnir aðilar sem eru að fá styrki, réttlætanlega skal ég alveg segja, en það er líka alveg spurning hverjir ætla að borga. Rökin hafa verið: Við ætlum að vaxa út úr faraldrinum. Það þýðir að ekki á að taka umframálögur frá neinum heldur á ávöxtunin af því afli sem er sett aukalega inn í aðgerðir ríkisstjórnarinnar, inn í hagkerfið, með hvaða úrræðum sem það er nýtt, í rauninni að borga til baka þessi lán. Mér finnst það alveg réttlætanlegt en mér finnst vanta útskýringarnar á því hversu mikill ábatinn er af aðgerðum ríkisstjórnarinnar og hvernig hann er að fara að borga eitthvað. Á hversu löngum tíma er hann að fara að borga upp þessar skuldir? Hvernig er sviðsmyndin til lengri tíma, eftir að faraldrinum er lokið? Við vitum að þó að ríkisstjórnin verði ekki hérna eftir árið 2026 að það er þá sem við byrjum að borga. Og við (Forseti hringir.) þurfum að fá að sjá hvernig það lítur út núna, (Forseti hringir.) áður en við förum mikið lengra með þetta.