152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.

232. mál
[12:22]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna með þessu frumvarpi sem við ræðum hér, um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem sætt hafa takmörkunum á opnunartíma. Líkt og aðrir þingmenn sem hafa tekið þátt í umræðunni hingað til þá vil ég einnig lýsa yfir því að mér líst vel á þetta frumvarp. Ég held að það komi til með að skipta rekstraraðila í veitingageiranum miklu máli að það verði samþykkt hér á Alþingi og ég bind vonir við að það fái vandaða en jafnframt skjóta meðferð í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég bind jafnframt líka vonir við það að fljótlega fáum við frumvarp sem taki til menningar og sviðslista, eins og hefur verið boðað, en það er auðvitað annar angi samfélagsins sem hefur þurft að sæta skerðingum á starfsemi vegna kórónuveirufaraldursins og til þess að tempra útbreiðslu smita í samfélaginu. Mér leist vel á það sem hæstv. ráðherra talaði um í framsöguræðu sinni um að bæta við þetta frumvarp, að bæta þeim inn sem reka gistiþjónustu með veitingaleyfi líkt og gert var í meðförum þingsins hér fyrr í þessari viku og tel sjálf að það væri afar brýnt að fá aðstoð frá fjármálaráðuneytinu við útfærslu á slíkri breytingartillögu til þess að hún þjóni þeim markmiðum sem við viljum ná. Mér hefur heyrst á umræðunni hingað til að þetta sé eitthvað sem nefndin muni taka til sín og muni vinna í samstarfi við ráðuneytið.

Þá tel ég einnig mikilvægt að nefndin fari vel yfir þau skilyrði sem sett eru í 4. gr. frumvarpsins. Þar er verið að skrifa inn ákveðinn sveigjanleika, vegna skilyrðanna, til að hægt sé að nýta úrræðið og ég held að það sé m.a. byggt á fyrri reynslu af því hvernig úrræði hafa nýst hingað til. Það er gott. Það er gott ef bæði ráðuneyti og Alþingi læra af þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram og noti hana í áframhaldandi vinnu sem þarf að gera. Það er ýmislegt í þessum skilyrðum sem ég tel bara fínt að nefndin fari yfir svo og auðvitað aðrar greinar frumvarpsins.

En ég ætla ekki að hafa fleiri orð eða lengja þessa umræðu en ég hlakka til að fá málið inn í nefnd og takast á við það því að ég held að það sé í grunninn gott og komi til með að skipta miklu máli fyrir rekstraraðila veitingastaða sem hafa þurft að sæta takmörkunum á opnunartíma.