styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.
Virðulegur forseti. Mér þykir þetta alveg afspyrnuvont. Mér þykir alveg ofboðslega vont að við séum hér að fjalla um frumvarp um styrki til rekstraraðila og það er ekki í fyrsta skiptið sem við gerum það. Ég sat í hv. efnahags- og viðskiptanefnd á síðasta kjörtímabili þar sem við fengum mörg sambærileg mál og ég vonaði auðvitað að það yrði í fyrstu og einu skiptin sem sú nefnd væri að fjalla um eitthvað sem við köllum styrki til atvinnulífsins. Og, virðulegur forseti, þegar við tölum um það þá erum við auðvitað að veita ákveðna styrki eða fyrirgreiðslur úr ríkissjóði þegar við erum að kalla eftir ákveðinni hegðun, til að mynda út frá loftslags- eða umhverfismálum og nýsköpunarmálum, vernd íslenskrar tungu, íslenskrar menningar eða einhverju slíku. En það er ekki þannig og á ekki að vera að við séum almennt að styrkja atvinnulífið. Hjól atvinnulífsins eru samfélaginu mikilvæg og uppspretta skatttekna sem við nýtum til að halda uppi nauðsynlegri þjónustu. Þess vegna velti ég fyrir mér: Af hverju erum við að tala um styrki núna? Eru þetta ekki miklu frekar bætur? Við erum að horfa til fyrirtækja sem hafa þurft að sæta verulegum takmörkunum af hálfu hins opinbera vegna heimsfaraldursins. Við þekkjum öll þá sögu og við getum haft mismunandi skoðanir á því hversu langt hefði átt að ganga í slíkum takmörkunum og mörgum finnst of langt gengið og kannski sérstaklega þegar við erum að gera þetta áfram núna og erum að detta inn í, hvað, er þetta ekki þriðja árið sem við erum að detta inn í af þessum Covid-fjanda? Ég velti því líka upp fyrir þá sem sitja í hv. efnahags- og viðskiptanefnd hvort það eigi að nota orðið bætur í stað orðsins styrkur.
Og aðeins tengt því sem var rætt hér áðan, ég hygg að það hafi verið hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sem var að velta fyrir sér einhverjum kröfum um að viðkomandi fyrirtæki mættu ekki greiða út arð og eitthvað slíkt. Það er umræða sem við tókum einmitt svolítið á síðasta kjörtímabili og rataði inn í einhver af þessum viðbragðsfrumvörpum okkar gegn heimsfaraldri. Ég skil alveg þær pælingar. En þegar við erum aftur á móti að tala um bætur vegna einhverra takmarkana sem hafa verið settar á af hinu opinbera þá má líka velta fyrir sér: Af hverju erum við að setja inn einhverjar frekari kröfur og er það ekki einmitt til þess gert að skekkja samkeppnisstöðuna? En ég svo sem ímynda mér líka að þeir sem starfa í þessum geira hafi mjög takmarkað svigrúm ef eitthvað til að greiða út arð á þessum tíma.
Þegar við lesum greinargerðina með þessu frumvarpi er rakin þessi ótrúlega saga sem við höfum verið í á síðustu misserum og árum orðið núna, um stöðugar breytingar á sóttvarnareglum. Ég tek undir þau sjónarmið sem voru viðruð hér í ræðum áðan að það er auðvitað algjörlega óásættanlegt fyrir rekstraraðila að sitja stöðugt undir því að það sé verið að breyta reglum. En þarna koma auðvitað til önnur sjónarmið sem við þekkjum sem eru heimsfaraldurinn og að við séum að verja heilsu landsmanna. Ég hygg að við séum að fara í umræður við hæstv. heilbrigðisráðherra hér á eftir og þá koma auðvitað mörg sjónarmið upp og m.a. sjónarmið sem ég hef mjög svo talað fyrir, að þingið þurfi að koma í auknum mæli að umræðu um takmarkanir sem við erum að setja og aðgerðir sem við erum að beita í glímu okkar við vanda í heilbrigðisþjónustu. En að því sögðu þá segi ég bara að mér finnst mjög vont að við séum almennt að tala um einhverja styrki til atvinnulífsins en mér sýnist frumvarpið engu að síður, við þær ankannalegu aðstæður sem við erum í í dag, vera nokkuð gott og byggja á þeirri reynslu sem við höfum verið að safna okkur á síðustu misserum.
Mig langar þó að nefna eitt, og ég beini því til nefndarinnar að huga að því, varðandi þá sem sinna veitingaþjónustu en eru kannski ekki með veitingaleyfi eða eru veitingastaðir, ég er í rauninni að vísa í þá sem eru með heimsendan mat, veitingaþjónustu, jafnvel þeir sem eru með sali og mat í veislur, leigja út sali. Við vitum að ekki hefur verið mikið um brúðkaup eða fermingarveislur eða árshátíðir eða eitthvað slíkt. Passa þeir undir þetta? Mér finnst í fljótu bragði eins og svo sé ekki. Ég átta mig ekki á því hvernig það er og hvort það væri hægt að bregðast við því en vil bara hvetja nefndina til að skoða það. En auðvitað er það þannig að einmitt þetta mál sem ég nefni núna er til þess fallið að flækja þetta og það er bara rosalega flókið þegar á að fara að tala um það hvernig á að greiða styrki úr ríkissjóði til atvinnulífsins. Hugur minn er hjá hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem þarf núna að leggjast yfir þetta og gera það mjög vel, vanda mjög vel til verka, en jafnframt gera þetta eins hratt og unnt er því að ég veit að þeir sem eru þarna úti og eiga margir hverjir allt sitt undir sinni starfsemi þurfa auðvitað á þessum aðgerðum að halda. Það er auðvitað í ljósi aðstæðna hægt að réttlæta þessar aðgerðir og þær eru alveg gríðarlega mikilvægar þannig að ég óska hv. efnahags- og viðskiptanefnd góðs gengis en hvet hana jafnframt til að skoða hvort það séu einhverjir sem kunni að falla þarna á milli.