styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.
Virðulegi forseti. Mig langar til að byrja á að tala um það sem eru í mínum huga algerlega sjálfsögð og augljós sannindi, að óvissa er sjálfstæð breyta fyrir aðila í rekstri. Hvað þann þátt varðar að skapa einhverja vissu, skapa umgjörð og einhvern fyrirsjáanleika þá hefur ríkisstjórnin algerlega brugðist þeim fyrirtækjum sem hér um ræðir. Fyrirtækin hafa eins og við þekkjum, og ég ætla ekki að fara að rekja þá sögu hér sérstaklega, aftur og aftur fengið á sig íþyngjandi regluverk af hálfu ríkisstjórnarinnar, vitaskuld í þágu sóttvarna en gjarnan með þeim hætti að aðgerðirnar sem valda breyttu rekstrarumhverfi þessara fyrirtækja eiga að taka gildi á miðnætti næsta dags, miðnætti eftir tilkynningu eða innan örfárra daga. Ríkisstjórnin sjálf tekur sér hins vegar vikur og jafnvel mánuði til að bregðast við og mæta efnahagslegu höggi og tjóni þessara fyrirtækja. Fyrirtækin eru með þessu skilin eftir í þeirri stöðu í rekstri sínum að eiga kannski og mögulega von á bótum eða stuðningi sem þau vita þó ekki hver er og heldur ekki hvenær tekur gildi. Það er nánast vonlaust að halda rekstri gangandi í svoleiðis rekstrarumhverfi. Afkoma fólks og atvinna er í húfi.
Sem þingmaður Reykvíkinga ætla ég líka að leyfa mér að lýsa yfir miklum áhyggjum af því hvernig áfangastaðurinn Reykjavík gæti litið út, verði mikið áframhald á þessum vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar. Hér verða auðvitað að vera einhver veitingahús og einhverjir skemmtistaðir þegar ferðaþjónustan hrekkur í gang af krafti aftur. Hérna vil ég aftur minna á það að fyrir jólin boðaði hæstv. fjármálaráðherra stuðningsaðgerðir, hvort sem maður vill tala um stuðning eða bætur í því samhengi, í þágu þessara fyrirtækja sem við vitum öll hver eru, þegar sóttvarnaaðgerðir voru enn á ný kynntar með nýju sniði og harðari en áður. Engar slíkar tillögur komu þó fram aðrar en þær að ríkisstjórnin hækkaði áfengisgjald.
Hér hefur verið talað um þörf á upplýsingum, þörf á greiningum og þörf á sviðsmyndum en að tveimur árum liðnum þá held ég að það sé sanngjarnt að segja að það sé ekkert nýtt í þessu. Þetta eru sömu sóttvarnaaðgerðirnar aftur og aftur. Sömu aðgerðum og verkfærum er beitt aftur og aftur. Sóttvarnalæknir hefur lýst því margsinnis í viðtölum hverjar þessar aðgerðir eru, hvað það er sem hann telur að best virki og hann hefur verið samkvæmur sjálfum sér í því. Við vitum hvaða efnahagsaðgerðum er þörf á til að bregðast við en þær koma bæði seint og illa fram.
Þetta frumvarp sem hér liggur fyrir þinginu er ágætt, svo langt sem það nær. En hér er ekki að finna öll þau úrræði sem þörf er á. Mér finnst það vera orðið allt að því rannsóknarefni af hvaða ástæðum það þykir svona flókið að leggja einfaldlega þær aðgerðir fram sem þörf er á samhliða sóttvarnaaðgerðum. Það gildir sama lögmál hér og um sóttvarnirnar að það eru nokkur verkfæri í kistunni og krafan verður að vera sú að kraftmiklum sóttvarnaaðgerðum, beiti ríkisstjórnin þeim, verða að fylgja efnahagsaðgerðir sem duga til. Fordæmaleysið á sér nú fjöldamörg fordæmi. Reynslan er til staðar og við þekkjum hvaða efnahagsaðgerðum er þörf á. Það ætti ekki að þurfa að gerast trekk í trekk að fyrirtæki, atvinnulífið, launþegar, séu skilin eftir vikum saman í óvissu um það hvers sé að vænta. Efnahagsaðgerðirnar verða að koma fram samhliða því sem ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir þrír stíga skref í sóttvörnum. Svo einfalt er það. Ég er ekki hingað komin til að ræða inntak sóttvarnaaðgerða heldur einfaldlega þennan veruleika. Þetta tvennt verður að haldast í hendur. Mér hefur fundist magnað að hlusta hér á þingmenn Sjálfstæðisflokksins í þingsal og jafnvel hlusta á ráðherra tala hér eins og rekstrarumhverfi þessara fyrirtækja hafi ekkert með stefnu ríkisstjórnarinnar að gera. Það er stundum eins og ágætir þingmenn og jafnvel ráðherrar Sjálfstæðisflokksins átti sig ekki á því að þeir tilheyra ríkisstjórninni sem tekur þessar ákvarðanir.
Það er m.a. af þessari ástæðu sem Viðreisn hefur nú lagt fram ósk um að heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra komi fyrir þingið, hingað inn í þingsal, og gefi skýrslu þegar nýjar sóttvarnaaðgerðir eru kynntar eða þær eru framlengdar með reglugerð heilbrigðisráðherra og að það verði gert samdægurs. Þetta tímabundna ástand er orðið ansi langdregið og í upphafi árs erum við því miður enn stödd í þeim veruleika að það virðist nokkuð í land í viðureigninni við heimsfaraldurinn. Það ríkir enn óvissa um það hvenær má ætla að daglegt líf fólksins í landinu komist aftur í eðlilegt horf. Og það skiptir engu máli hvernig þingmenn eða ráðherrar Sjálfstæðisflokksins tala í fjölmiðlum um afstöðu sína til borgaralegra réttinda þegar þau tala með einum hætti í fjölmiðlum og iðka svo aðra stefnu við ríkisstjórnarborðið.
Við óskum eftir því að skýrslugjöfin feli í sér upplýsingar um forsendur að baki ákvörðunum sem teknar eru hverju sinni, um fyrirhugaðan árangur og áhrif á samfélagið að öðru leyti. Þar erum við með það í huga að viðfangsefnið hér í þingsal er að skoða myndina heildstætt. Við erum öll meðvituð um þær miklu áskoranir sem heilbrigðiskerfið glímir við og heilbrigðisstarfsfólk. Ég held að þjóðin og þjóðfélagið allt sé heilbrigðisstarfsfólki mjög þakklátt fyrir þeirra vinnu. Þingmenn eru á hinn bóginn líka meðvitaðir um það hvernig staðan er sums staðar úti í samfélaginu og hræðsluna sem þar ríkir vegna þess að fólk hefur áhyggjur af afkomu sinni. Við óskum þess vegna líka eftir því að ráðherrar upplýsi samtímis um það hvort og hvenær efnahagsaðgerðir verði lagðar til af hálfu ríkisstjórnarinnar til að mæta efnahagslegum og félagslegum afleiðingum sóttvarnaaðgerða hverju sinni. Við sjáum fyrir okkur að með þessu móti fáist fram forsendur og röksemdir stjórnvalda hverju sinni í markvissari umræðu á vettvangi þingsins.
Við vitum að stærstu verkefni og áskoranir í heimsfaraldrinum eru enn þá þrjár; að verja líf, heilbrigði og í dag ekki síst einfaldlega að koma í veg fyrir of mikið álag á heilbrigðiskerfið, en um leið og samhliða eru það líka þessar gríðarmiklu efnahagslegu afleiðingar á gangverk atvinnulífsins og síðan þessir stóru félagslegir þættir og líðan þjóðar, hvað það kostar samfélagið til lengri tíma litið að vera með langvarandi atvinnuleysi. Á hinum pólitíska vettvangi hefur kastljósið fyrst og fremst verið á samspili og valdmörkum milli heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknis en stóra pólitíska grundvallarspurningin varðar auðvitað samspil þings og ráðherra. Það er réttur þingsins og það er skylda þingsins að rækja eftirlit með stjórnvöldum. Ég get ekki stillt mig um að nefna þennan þátt þegar við erum hér í dag að ræða um efnahagsaðgerðir í þágu tiltekinna rekstraraðila vegna þess að þetta er svo nátengt, það er þörf á aukinni aðkomu þings að þessu leyti með því að fá fram forsendur, röksemdir, opna og gagnrýna umræðu um hvert á að stefna.
Aðeins um inntak aðgerða. Eins og ég nefndi áðan, virðulegi forseti, er afstaða mín sú að þetta frumvarp sé gott svo langt sem það nær. Það er nauðsynlegt. Það er tímabært sannarlega. Það má raunar færa fyrir því rök að það sé of seint fram komið. En fyrsta aðgerð ríkisstjórnarinnar um frestun gjalddaga hjálpar fyrirtækjum í þessum sporum lítið, um það virðist flest veitingafólk vera sammála. Það segir sig auðvitað sjálft. Þótt veiran hopi, þótt reksturinn taki við sér á ný, þá munu rekstraraðilar í besta falli komast á sambærilegan stað og þeir voru áður og það er við bestu aðstæður. Þessir staðir munu ekki verða í þeirri stöðu á næstunni að vinna upp eitthvert tap síðustu mánaða og missera. Frestun gjalddaga er sambærileg því að sópa ruslinu undir teppið og þetta veit ríkisstjórnin og þetta skilja þeir rekstraraðilar sem eru að fá þetta fátæklega úrræði upp í hendurnar. Þess vegna er verið að leggja til núna þessa styrki svokölluðu, sambærilega þeim sem áður voru hér í boði.
Ég spyr mig að því hvers vegna ríkisstjórnin lítur ekki til fyrri reynslu og horfir á fleiri úrræði. Tekjufallsútreikningar eru ágætir fyrir suma rekstraraðila, gagnast ekki öllum. Veitingastaðir með stutta rekstrarsögu t.d. standa höllum fæti gagnvart hinum, jafnvel þegar við tökum mið af undantekningum í frumvarpinu. Tekjufallsstyrkir munu ekki einir og sér bæta skaðann sem atvinnulífið og veitingageirinn hefur orðið fyrir og ég held að það sé réttmætt og eðlilegt að við horfumst í augu við það að við erum að tala um skaða. Við vitum af reynslunni að fyrirkomulagið sem hér er lagt upp með getur skapað hvata sem eru óheilbrigðir í rekstrarumhverfi. Ég er þeirrar skoðunar að hlutabótaleiðin hafi verið það úrræði sem gagnaðist einna best í byrjun faraldursins til að styðja bæði við fyrirtækin og atvinnulífið í heild sinni og vitaskuld ekki síst starfsfólk, það er mikilvægt að við séum að tryggja ráðningarsamband, tryggja störf, tryggja afkomu fólks sem í þessum fyrirtækjum og geira starfa. Nú heyri ég það frá fjölmörgum aðilum að fólk óttast að uppsagnir séu fram undan vegna þess að sóttvarnaaðgerðir eru framlengdar á tveggja til þriggja vikna fresti. Það er tímaramminn sem menn í rekstri geta starfað út frá í dag. Það eru engar væntingar um það, sýnist manni, að ríkisstjórnin sé að komast á annan stað þrátt fyrir að hún hafi boðað það í sumar, m.a. varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hæstv. utanríkisráðherra, að væntanleg væri stefna ríkisstjórnarinnar og framtíðarsýn um viðbrögð við heimsfaraldri þannig að landsmenn allir og fyrirtæki gætu farið að átta sig á horfum til lengra en tveggja og þriggja vikna. Núna þegar smitin eru með þeim hætti sem þau eru í samfélaginu og viðbrögð stjórnvalda eru eins og þau eru og efnahagsaðgerðir koma fram veiklaðar og of seint þá er sú hætta svo sannarlega fyrir hendi að við séum að horfa fram á uppsagnir í þessum geira.
Ég er ánægð með að þetta frumvarp sé fram komið en það eru mér mikil vonbrigði hversu seint það er á ferðinni. Ég skora á ríkisstjórnina að gera betur og komi til þess að sóttvarnaaðgerðir verði framlengdar að nýju á næstu dögum eins og búast má við þá sé hún samhliða tilbúin með svörin um það hvernig eigi að mæta þeirri stöðu fyrir vinnandi fólk og fyrirtækin í landinu.