152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

sóttvarnaaðgerðir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:59]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir andsvarið. Mér heyrðist hæstv. ráðherra jákvæður gagnvart breytingu á sóttvarnalögum í þá átt að auka aðkomu þingsins að sóttvarnaaðgerðum og ég fagna því. Ég tek undir það og er sammála því að Landspítalinn á auðvitað að vera svo búinn að hann geti sinnt eðlilegu hlutverki sínu, að það verði ekki viðtekin venja hér að samfélagið stilli sig af til að koma til móts við heilbrigðiskerfið. Við höfum haft tvö ár til þess að búa svo um hnútana og ég hvet hæstv. heilbrigðisráðherra til dáða að gefa í í því verkefni.

En mig langar til að koma aftur að velferð barna og unglinga. Síðustu daga hafa verið teknar mikilvægar ákvarðanir í þágu barna, m.a. um breytta framkvæmd sýnatöku, og það er jákvætt þótt seint hafi verið. Ég vil hvetja heilbrigðisráðherra til að ganga lengra í hagsmunagæslu fyrir börnin okkar og standa við það sem hann segir um að vernda líf og heilsu þeirra. Nú hafa þúsundir barna verið skikkuð ítrekað í sóttkví og einangrun árum saman. Það er langur tími í lífi barna og ekkert lát hefur orðið á því heldur þvert á móti. Þessa stundina er verið að kippa börnum í hrönnum út úr daglegu lífi og rútínu. Fyrir allt of mörg börn þýðir það einvera og bjargarleysi í skaðlegum aðstæðum heima fyrir. Það er með öllu óeðlilegt að skólastjórnendur vinni nú dag og nótt að smitrakningu barna og taki í raun stjórnvaldsákvarðanir um sóttkví þeirra. Mér er ekki kunnugt um að þessi háttur sé hafður á í neinum af okkar nágrannalöndum og hvergi virðast börn eins einangruð í eins miklum mæli og hér á landi. Nú er brýnt að skólastjórnendur og kennarar geti sinnt menntun barnanna okkar og horfið verði frá því að beita börn ýtrustu takmörkunum.

Það er skylda okkar sem samfélags að vernda börnin okkar fyrir því sem ógnar lífi okkar og heilsu. Því beini ég því aftur til hæstv. heilbrigðisráðherra að hann hafi forystu um það að við göngum ekki áfram (Forseti hringir.) svo freklega á mikilvæg réttindi barna, á líf þeirra og heilsu til verndar (Forseti hringir.) öðrum en þeim sjálfum.