sóttvarnaaðgerðir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svarið og þó að ég bæri ekki upp þá spurningu tók ráðherrann áfram umræðuna sem ég var með í fyrri ræðu um þessa einstöku samvinnu innan heilbrigðiskerfisins sem við höfum upplifað og erum akkúrat þessa dagana að sjá ótrúlegan sveigjanleika og útsjónarsemi. Við ræddum hér fyrr í vikunni um áskoranirnar sem þar hafa birst, hugsanlega veikleika og hvernig mætti bregðast við þeim. En mig langar að koma inn á og hvetja til þess að það verði líka reynt að greina styrkleikana sem hafa birst. Ég vil því spyrja ráðherra hvort hann hafi komið auga á hvað það sé helst sem við gætum byggt ofan á af þeim styrkleikum sem hér birtast, einmitt til þess að vinna gegn veikleikunum sem óhjákvæmilega fylgja jafn litlu heilbrigðiskerfi og við rekum hér innan lands.
Mig langar líka að koma inn á aðra áskorun sem mér finnst heilbrigðisstarfsfólki almennt hafa tekist vel að mæta, þ.e. þegar það þarf að fara fram sýnataka um allt land og koma PCR-sýnum samdægurs til greiningar til höfuðborgarinnar. Þetta hefur verið mjög mikilvægt og hefur almennt gengið greiðlega fyrir sig en það eru áskoranir í þeim samgöngumöguleikum sem við búum við. Nýlega birtust fréttir um að á næstunni gæti reynst erfitt að koma sýnum á Austurlandi samdægurs til greiningar. Ég vona svo sannarlega að þar rætist úr.
Mig langar að koma aftur að spurningunni sem ég var í rauninni komin að í fyrri ræðunni, þ.e. áhyggjur mínar af þeim þjóðum og heimshlutum sem ekki hafa sama aðgengi að bóluefni og við (Forseti hringir.) vegna stöðu viðkomandi landa (Forseti hringir.) og áhrif þess á áframhaldandi þróun heimsfaraldursins. Hvernig er alþjóðasamvinnan á þessu sviði?