sóttvarnaaðgerðir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir skýrsluna. Tvennt er mér efst í huga í umræðunni í dag. Það er annars vegar hinn margumtalaði skortur á langtímaáætlunum og framtíðarsýn af hálfu ríkisstjórnarinnar í þessum málum og hins vegar afleiðingar bæði heimsfaraldursins og þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til, en ákallið eftir þeirri umræðu verður sífellt háværara eins og við höfum heyrt hér í dag. Það má ekki gleyma því að af samfélagslegum takmörkunum hlýst gríðarlegur kostnaður. Það á ekki bara við um rekstrartekjur fyrirtækja og atvinnumissi einstaklinga heldur einnig félagslega tengslamyndun heillar kynslóðar. Menntaskólanemar sem hófu nám sama ár og Covid-19 greindist fyrst fara brátt að útskrifast. Ráðist hefur verið í ýmsar aðgerðir til að aðstoða fyrirtæki og aðra aðila við að glíma við fjárhagslegar afleiðingar sóttvarnaaðgerða en afleiðingarnar eru ekki bara fjárhagslegar. Það vantar allan fókus og alla umræðu um það hvernig stjórnvöld ætla að taka á afleiðingum aðgerðanna fyrir fólkið sjálft og aðstoða þá hópa sem hafa orðið verst úti vegna þessara aðgerða.
Ein alvarleg ófjárhagsleg afleiðing heimsfaraldursins er nokkuð sem stjórnvöld hafa verið algerlega sofandi gagnvart. Alþekkt er að neyðarástand og hvers lags ógn við afkomu fólks getur leitt til sundrungar í samfélaginu. Þetta eru ekki bara fyrirséðar afleiðingar heldur eru þær þegar farnar að koma í ljós hér á landi sem annars staðar. Leitað er að blórabögglum vegna þess sem er að gerast og þeirra er gjarnan leitað á meðal minnihlutahópa á borð við innflytjendur og aðra sem erfiðara eiga með að bera hönd fyrir höfuð sér. Ég hef lagt það til áður og ætla að ítreka þá tillögu mína hér að ríkisstjórnin ráðist í markvissa herferð gegn slíkri sundrungu í samfélaginu. Samhliða slíkri herferð er nauðsynlegt að styrkja og styðja við stofnanir og aðra aðila sem hafa það hlutverk að gæta einnar mikilvægustu stoðar okkar samfélags, mannréttinda borgaranna. Þá verður einnig að líta til þess að hér virðist vera ráðist fyrst í afléttingar fyrir þau sem hafa hlotið fulla bólusetningu með örvunarskammti. Það má minna á að í slíkum ákvörðunum felst ákveðin mismunun. Það kann að vera að grundvöllur mismununarinnar sé málefnalegur en það verður engu að síður að spyrja þeirrar spurningar hvort slík mismunun sé í samræmi við þá vernd borgararéttinda sem almenningur á að njóta og hvort til þess hafi yfir höfuð verið litið við ákvarðanatökuna.
Því spyr ég ráðherra: Við ákvarðanatöku um aðgerðir í þágu sóttvarna er haft samráð við lögfræðinga, sérfróða í mannréttindum, til að tryggja að sú aðferð sem valin er, bæði í aðgerðum til að sporna við heimsfaraldrinum og afléttingu þeirra, brjóti ekki gegn jafnræðisreglu og öðrum grundvallarmannréttindum fólks beint eða óbeint?