uppbygging geðdeilda.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur og meðflutningsmönnum fyrir þessa tillögu sem ég styð heils hugar. Fyrir örfáum misserum samþykkti þing Evrópuráðsins ályktun um að binda endi á nauðung í meðferð geðheilbrigðismála í Evrópu. Byggði ályktunin á skýrslu sem unnin var fyrir þingið um stöðu þessara mála í Evrópu og nauðsynlegar úrbætur. Í skýrslunni kom m.a. fram að beiting nauðungar og annarra þvingunarúrræða í geðheilbrigðismálum fari vaxandi í Evrópu og breytingar á löggjöf sem ætlað hefur verið að draga úr slíkri nauðung hafi ekki haft tilskilin áhrif í framkvæmd. Orsökin er rakin til viðhorfa og menningar sem reiðir sig á stjórnun og meðferð einstaklinga sem eru hugsanlega taldir hættulegir sjálfum sér eða öðrum. Vísan til hættu á ofbeldi af hálfu þessara einstaklinga virðist vera ríkjandi réttlæting fyrir valdbeitingu í geðheilbrigðismálum og það þrátt fyrir að rannsóknir hafi hvorki leitt í ljós sérstök tengsl á milli geðraskana og ofbeldis né sýnt fram á gagnsemi valdbeitingar til að koma í veg fyrir að fólk valdi sjálfu sér eða öðrum skaða. Þvert á móti hafa félagslegar rannsóknir leitt í ljós að beiting þvingunar við meðferð geðraskana hafi verulegar neikvæðar afleiðingar fyrir þá einstaklinga sem beittir eru slíku valdi. Ýmiss konar meðferðir gegn vilja viðkomandi, svo sem þvinguð lyfjagjöf, eru nefndar sem sérstaklega skaðlegar andlegri velferð einstaklingsins. Þá eru ónefndar siðferðislegar spurningar í tengslum við hugsanlegar og varanlegar líkamlegar afleiðingar slíkra meðferða. Þá hafi beiting nauðungar fælandi áhrif á fólk sem forðist jafnvel að leita sér aðstoðar af ótta við að verða beitt slíkri nauðung. Þennan vítahring þarf að rjúfa. Ályktaði þingið í kjölfarið að geðheilbrigðiskerfi í Evrópu þurfi að endurhugsa, m.a. út frá alþjóðlegum skuldbindingum aðildarríkjanna, svo sem samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, og í samræmi við siðfræði lækninga og virðingu fyrir mannréttindum og sjálfsákvörðunarrétti fólks.
Í skýrslunni er farið yfir ýmsar leiðir sem hægt er að fara til þess að koma alfarið í veg fyrir að beita þurfi nauðung gagnvart fólki með geðraskanir. Er í kjölfarið skorað á aðildarríki að stefna að heilbrigðiskerfi algerlega lausu við nauðung og þvinganir. Á meðal þeirra skrefa sem lagt er til að ríkið taki í þessa átt er að þróa framtíðarsýn um róttæka fækkun tilfella þar sem nauðung er beitt í samstarfi allra hlutaðeigandi og þá sérstaklega einstaklinga með geðraskanir og þjónustuveitendur. Lagt er til að ríkin þrói áhrifaríka og aðgengilega stuðningsþjónustu fyrir einstaklinga í andlegum erfiðleikum, þar á meðal örugg og stuðningsrík úrræði fyrir fólk til að ræða hugsanir um sjálfsskaða og sjálfsvíg. Þróa þarf og fjármagna rannsóknir á úrræðum án þvingunar, setja það fjármagn í forvarnir og snemmtæka greiningu geðraskana og snemmtæk úrræði án þvingunar, sér í lagi fyrir börn og ungt fólk, án fordóma. Berjast þarf gegn staðalímyndum um fólk með geðraskanir og narratívu um ofbeldi og fólk með geðraskanir með vitundarvakningu, með þátttöku allra sem hafa aðkomu að slíkum málum, þar með talið þjónustuveitendum, fjölmiðlum, löggæslu og almenningi til viðbótar við fólkið sjálft sem upplifað hefur geðraskanir. Endurskoða þarf námskrá á öllum námsstigum með það fyrir augum að tryggja að þær séu í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Berjast þarf gegn útilokun og útskúfun fólks með geðraskanir með því að tryggja því aðgang að viðeigandi félagslegri þjónustu, húsnæði og atvinnu. Að lokum er lagt til að veita aðstandendum fólks með geðraskanir bæði félagslegan og fjárhagslegan stuðning til að koma til móts við álag og áskoranir sem fylgja úrræðaleysi fyrir fólk með geðraskanir. Allt eru þetta skref sem þarf að stíga í þá átt að hætta alfarið að neyða fólk til að þiggja meðferð eða loka það inni vegna geðraskana.
Ég styð þá þingsályktunartillögu sem hér er rædd en ég hvet stjórnvöld til þess að líta til framtíðar við alla vinnu við uppbyggingu geðdeilda og tryggja að ný og endurbætt úrræði séu í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem við höfum undirgengist, einkum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og nútímaleg viðhorf til geðraskana og fólks með geðraskanir.