152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

uppbygging geðdeilda.

14. mál
[16:27]
Horfa

Flm. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var býsna góð. Mig langaði aðeins að koma inn á þetta með þvingaða lyfjagjöf. Það er í raun ótrúlegt að þeir sem glíma við geðrænar áskoranir á Íslandi eigi enga möguleika á að komast einhvers staðar undir læknishendur á deildum, þ.e. í innlögn á lyfjalausum deildum, árið 2022. Vissulega geta lyf hjálpað í einhverjum tilfellum og ég ætla ekki að segja að svo sé ekki. En margir hafa greint frá því að lyfin hafi í raun hægt á bataferlinu, að þau hafi unnið gegn markmiðunum vegna þess að sú sjálfsbjargarviðleitni að reyna að komast í gegnum sjúkdóminn, í gegnum einkennin sem eiga sér stað, tímabundið mögulega og án þess að fá utanaðkomandi lyf, sé lömuð meðan á mikilli lyfjagjöf stendur. Hvergi á Íslandi er hægt að fá þessa þjónustu undir vökulu auga heilbrigðisstarfsfólks eins og þekkist annars staðar á Norðurlöndum og víða um heim, víða um Evrópu. Þar er hægt að óska eftir þjónustu heilbrigðisstarfsfólks, af því að þú vilt jú að þess sé gætt að þú fáir umönnun og slíkt, án þess að þú gangist undir það að vera mögulega neyddur til að taka inn lyf sem þú vilt ekki taka. Við höfum heyrt fjölmargar frásagnir af mjög erfiðri upplifun fólks sem hefur beinlínis fengið vanvirðandi meðferð í slíkum aðstæðum. Ég held að við verðum að leggja höfuðáherslu á að koma á laggirnar a.m.k. einni slíkri deild á Íslandi.