152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

uppbygging geðdeilda.

14. mál
[16:29]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir að benda einmitt á þetta. Ég rak sérstaklega augun í þetta í tillögunni og það gladdi mig mjög þar sem það er mjög stórt skref og mikilvægt í þá átt að bjóða fólki upp á aðstoð á eigin forsendum. Ég held að það sé lykilatriði í allri þessari þróun að hugsa þessa hluti út frá forsendum einstaklingsins sem glímir við geðraskanir og þá er í beinni mótsögn að beita nokkurs konar þvingun eða nauðung. Þó að mér finnist það segja sig sjálft þá sýna rannsóknir það líka að slík beiting nauðungar og þvingunar hefur öfug áhrif, hefur slæm áhrif á bata fólks fremur en góð. Það kemur kannski svolítið á óvart að þróunin hafi ekki verið hraðari í geðheilbrigðismálum af því að það er orðið ansi langt síðan við áttuðum okkur á því að það að beita einhvern þvingun eða nauðung er ekki besta leiðin til að ná til hans. Það er bara mannlegt eðli. Þetta eru, held ég, úrræði sem er beitt af hugmyndaleysi og úrræðaleysi og jafnvel skorti á hugmyndum um það hvaða öðrum leiðum er hægt að beita. Svipað hefur gerst í þróun almennra mannlegra samskipta og t.d. barnauppeldis þar sem á árum áður þótti eðlilegt að beita þvingunum og nauðung vegna þess að okkur datt ekkert annað í hug. En nú höfum við áttað okkur á því að það er ekki vænlegt til að styðja fólk í því að ná fullum tökum á hæfileikum sínum og verða það besta sem það getur orðið.