152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

uppbygging geðdeilda.

14. mál
[16:31]
Horfa

Flm. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Þar leyndist þetta lykilatriði, að við séum í þessari uppbyggingu á forsendum notandans en ekki kerfisins. Þess vegna leggjum við svo mikla áherslu á það í þessari þingsályktunartillögu að í starfshópnum, sem við vonumst til að heilbrigðisráðherra kalli saman — þó að tímaramminn riðlist eitthvað er aðalatriðið að við hefjum verkið — séu sérfræðingar en það er alveg jafn mikilvægt að í þeirri vinnu séu fulltrúar þeirra sem nota þjónustuna og fulltrúar aðstandenda þeirra. Það er fólkið sem þekkir hvernig við getum þjónað hagsmunum þeirra sem þurfa að dvelja um lengri eða skemmri tíma á lokuðum deildum.

Geðheilbrigðismálin í heild sinni eru í miklum ólestri á Íslandi. Aðstæður þeirra sem starfa í geiranum eru ekki góðar og þess vegna verður líka lítil fjölgun, bæði í hópi geðlækna og geðhjúkrunarfræðinga, sem leiðir svo aftur til þess að loka þarf rýmum, biðlistar lengjast og þess háttar. Ég óttast að rekja megi þá ákvörðun að skilja geðsviðin út undan, við þessa ofboðslega miklu og dýru uppbyggingu á Landspítala við Hringbraut, til undirliggjandi fordóma í kerfinu. Það virðist sem geðheilbrigðismálin séu olnbogabarn og mæti alltaf afgangi. Það er ekkert samræmi milli þess fjármagns sem fer í geðheilbrigðismál og hlutdeildar slíkra einstaklinga í sjúklingahópnum. Ég held að við þurfum að fara að horfa allt öðrum augum á þessa stöðu, þennan hluta heilbrigðis til framtíðar.