152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

uppbygging geðdeilda.

14. mál
[16:34]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir samtalið. Það vekur einmitt furðu hvað það þykir sjálfsagt enn þann dag í dag að tala um að alltaf þurfi að vera einhver nauðung í glímu fólks við geðraskanir, að ekki sé hægt að koma alveg í veg fyrir slíkt. Þegar fólk talar þannig þá finnst mér það svolítið missa sjónar á því að ástæðan fyrir því að við beitum nauðung er ekki sú að það sé góð lausn og ekki sú að slíkt leysi nokkurn vanda eða tryggi bata eða árangur í einu eða neinu heldur grípum við til þeirra úrræða vegna þess að við vitum ekki hvað við eigum að gera, vegna þess að við höfum ekki aðra lausn. En nú er það orðið þannig á árinu 2022, sem betur fer, að við höfum heilmikið af tækjum. Við höfum heilmiklar rannsóknir, við höfum lausnirnar. Við vitum hvernig á að gera hlutina öðruvísi. Það að við skulum ekki gera það er kannski skortur á hugarfarsbreytingu. Það er oft erfitt að ná hugarfarsbreytingu inn í þá hægvirku vél sem samfélagið er að mörgu leyti. Í þessu samhengi má t.d. nefna skort á vilja ríkisstjórnarinnar til að fjármagna eigin áætlanir um að bjóða fólki upp á sálfræðiþjónustu sem ætla má að komi í veg fyrir frekari vandamál á síðari stigum. Flestar þeirra lausna sem eru í boði sem valmöguleiki á móti því að fara í þvinganir snúast um að grípa einstaklinga miklu fyrr, löngu áður en kemur að því að örvæntingin er orðin svo mikil og úrræðaleysið að grípa „þurfi“ til slíkra úrræða. Við getum alveg fundið aðrar leiðir.