152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

uppbygging geðdeilda.

14. mál
[16:46]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hv. þingmönnum fyrir framlagningu þessarar þingsályktunartillögu sem ég tel mjög brýna og fjalla um mjög brýnt og aðkallandi verkefni, þ.e. að bæta aðstöðu fyrir þá sem glíma við geðsjúkdóma og stuðla að bættu geðheilbrigði. Ég tók einnig til máls þegar þetta mál var á dagskrá á síðasta þingi, held ég örugglega, og benti á það sem ég myndi persónulega vilja að væri skoðað, þ.e. ef starfshópur væri settur á laggirnar til að fara yfir þessi mál, er þetta atriði varðandi geðsvið Landspítalans. Mér finnst mjög góð viðbót að tala líka um geðsvið Sjúkrahússins á Akureyri, en ég er þá kannski að vísa í það að við höfum tekið ákvörðun um að Landspítalinn sé við Hringbraut með sínum mannvirkjum þar og það er vissulega rétt, sem bent hefur á, að í þeim nýbyggingum og allri þeirri uppbyggingu er ekki gert ráð fyrir nýjum meðferðarkjarna. Ég get tekið undir það, sem hér kemur fram, að húsnæði geðsviðsins við Hringbraut er orðið mjög úr sér gengið og margt sem hægt væri að bæta til muna og það sama á eflaust við um Kleppsspítala þó að ég hafi ekki komið þar býsna lengi. Ég hef oft nefnt að ég var alin upp á Kleppi og bjó þar fyrstu æviár mín í einstaklega fallegu umhverfi. Þá var Kleppsspítali næstum því uppi í sveit þó að hann sé í miðri byggð núna. Það er kannski það sem ég hef aðeins verið að velta fyrir mér varðandi þessa staðsetningu og kann að vera að sérfræðingar hafi mismunandi sýn á það, en ég tel umhverfið alltaf skipta ofboðslega miklu máli. Ég hef mikla trú á því að nálægð við náttúruna, útsýni, það að komast út undir bert loft og vera úti í náttúrunni, geti haft mikil og góð áhrif á okkur sem mannverur, hvort sem við erum að glíma við veikindi eða ekki, og jafnvel sérstaklega fyrir þau sem glíma við veikindi á sviði geðheilbrigðis. Ég velti því upp hér síðast og ég vil bara koma því aftur að, ef nefndin fer að fjalla um þetta, hvort ekki væri allt eins eðlilegt að velta því fyrir sér, þegar við erum að tala um uppbyggingu nýs geðspítala, að staðsetningin þyrfti ekki að vera við Hringbraut. Staðsetningin gæti verið einhvers staðar allt annars staðar. Í mínum huga sé ég fallega náttúru og meira rými til þess að þróa áhugaverða þjónustu þar sem náttúran er nýtt í þjónustunni.

Þarna kemur líka að ákveðnu sjónarmiði sem ég hef varðandi Landspítalann sem er auðvitað hjartað í heilbrigðiskerfi okkar. Mér finnst þó líka mikilvægt að fleiri stofnanir eða fyrirtæki — og ég er ekkert endilega að tala um einhver fyrirtæki sem eru rekin í ágóðaskyni — komi að heilbrigðismálum. Ég velti fyrir mér hvort það þurfi endilega að vera Landspítalinn eða hvort það geti hreinlega verið geðheilbrigðisspítali Íslands og væri þá sérstök stofnun sem gæti jafnvel hýst helstu fagþekkingu, rannsóknir og þróun á sviði geðheilbrigðismála og þannig miðlað þekkingu áfram inn í aðra anga heilbrigðiskerfisins eins og til að mynda heilsugæslunnar. Ég er þá kannski bara að opna á það við velferðarnefnd, sem fær þetta til umfjöllunar, hvort víkka eigi tillöguna eitthvað út frá því að tala um Landspítalann og, eins og fólki hættir þá til, að tala um Hringbraut. Markmiðið er auðvitað núna að Landspítalinn verði nánast allur þar.

Ég fagna þessari tillögu. Ég held að það sé mjög brýnt að bæta húsakostinn en það er ekki síður brýnt að huga að geðheilbrigðismálum í stóra samhenginu og því miður óttast ég mjög að sú svakalega vegferð sem við höfum verið í sem samfélag, og ekki bara íslenskt samfélag heldur heimurinn allur, á tímum heimsfaraldurs geri það að verkum að geðheilbrigðismál þurfi að setja enn meira á oddinn. Ég held að þessi mikla einangrun og þær miklu hömlur sem settar hafa verið á daglegt líf einstaklinga, sem felst í því að fólki er í raun gert að vera eitt með sjálfu sér eða í litlum hópum, hafi almennt vond áhrif á geðheilbrigði. Ég tel því mjög brýnt að vera vakandi yfir þessum málaflokki, líðan fólks, á næstu árum og misserum og styðja vel við þá sem best til þekkja um það hvernig við getum meðhöndlað og barist fyrir bættri lýðheilsu og bættri geðheilsu og geðheilbrigði.