152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

uppbygging geðdeilda.

14. mál
[16:51]
Horfa

Flm. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Ég tek heils hugar undir að umhverfi skiptir mjög miklu máli þarna, sérstaklega þegar við erum að tala um útiveru, að geta komist í nærandi umhverfi og þess háttar, að það sem mæti manni séu ekki tóm háhýsi, bílastæði og umferðarþungi. En ég hef kynnt mér þetta aðeins og átt orðastað við fjölmarga sem starfa innan þessa geira og við gerðum það líka í hv. velferðarnefnd þegar ég sat þar á síðasta kjörtímabili. Það er tveir skólar í þessu og mér finnst mikilvægt að hlustað verði á þá báða og skoðað hvað hægt er að gera. Einhverjir telja mikilvægt að geðdeildir séu í betra umhverfi, það sé meiri möguleiki á því að vera í námunda við náttúruna og tek ég heils hugar undir það. Aðrir, sérstaklega heilbrigðisstarfsmenn en einnig aðrir sérfræðingar, hafa hins vegar talað fyrir því að það sé mikilvægt að þjónusta vegna hugar og líkama sé í tengslum og tala um að það geti minnkað fordómana í kerfinu ef þetta er í rauninni ein heild og að annar sjúklingahópurinn sé ekkert öðruvísi en hinn. Við séum að fást við þetta allt saman heildrænt. Ég get alveg verið sammála hvoru tveggja en það er samt sem áður þannig að ef maður liggur inni út af miklum stoðkerfisaðgerðum þá er þörf manns fyrir að komast út að ganga kannski minni en þess sem er að glíma við geðrænar áskoranir. Það er ekki alveg víst að sömu þarfir séu fyrir báða hópa. Ég ætla að koma að hinum tveimur atriðunum í seinna andsvari.