uppbygging geðdeilda.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér er það ljóst að það eru þessir tveir skólar þó að ég hafi kannski ekki kynnt mér það sérstaklega, en ég hef heyrt það og ég hef ákveðinn skilning á því. Þegar við byggðum upp Reykjalund á sínum tíma, berklaspítala lengst upp í sveit, litu sumir á það þannig að verið væri að útskúfa fólki og koma því einhvers staðar fyrir þar sem enginn sæi. Á seinni tímum er Reykjalundur okkar endurhæfingarspítali og einn af bestu endurhæfingarspítölum á Norðurlöndum, ef ekki bara í Evrópu, einmitt líka vegna staðsetningarinnar, af því að umhverfið er hluti af allri meðferð.
Það kann vel að vera að við þurfum að horfa aðeins víðtækar á málið og ég hef mikinn skilning á því með til að mynda bráðaþjónustuna, eins og bráðageðdeildina, það er eðlilegt að hún sé einhvers staðar miðsvæðis og í tengslum við aðra þjónustu og eflaust líka hagkvæmara að hafa hana með annarri bráðaþjónustu. Það er nú samt sem áður svo að bráðaþjónustan á geðdeildinni er opin á skrifstofutíma. Ef eitthvað kemur upp á þá ferðu inn á einhverja aðra bráðadeild og yfirleitt er þér bara sagt að bíða þangað til að það er opnað á skrifstofutíma og hægt að taka á móti þér, sem er náttúrlega algerlega galið. Ég skil það svo sem út frá læknisfræðilegum forsendum, það er auðveldara að meðhöndla handleggsbrot, það er brot og það er vitað hvað á að gera, en þegar eitthvað brotnar í huga okkar og á geðsviðinu er erfiðara að finna út úr því hvað það er og hvernig við getum brugðist við. En það er okkar verkefni að leita leiða. Ég hef skilning á þessu og vil bara benda á það í þessari vinnu, ef starfshópur tekur til starfa, að hann sé svolítið opinn fyrir því að horfa á báðar leiðirnar og hvar þessu er best fyrir komið, að við séum ekki búin að ákveða það fyrir fram að það sé best að byggja enn aðra byggingu við Hringbraut til að hýsa þessa starfsemi.