uppbygging geðdeilda.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka þátt í þessari umræðu með okkur og það var margt athyglisvert sem hann hafði fram að færa hér. Þegar þessi sama tillaga var borin upp hér í fyrra voru þetta kannski svolítið helstu viðbrögðin; að það þyrfti að styrkja geðheilbrigðisþjónustu utan Landspítala, það þyrfti þá kannski einhverjar sjálfstæðar stofnanir eða jafnvel fyrirtæki til að sinna því. Og þótt hér hafi birst mjög málefnaleg sjónarmið og ég geti verið sammála því að huga þurfi sérstaklega að staðsetningu annars staðar en á Hringbraut þá finnst mér þetta svolítið vera stemningin aftur. Það er einhvern veginn strax farið að tala um geðheilbrigðisþjónustu utan við Landspítala. Nú er auðvitað heilmikið um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu okkar og margt er þar gert ofboðslega vel. Svo er skoðanamunur milli flokka um það hversu mikið eigi að auka hann o.s.frv. Mig langar kannski að varpa því fram hvort við getum ekki, óháð afstöðu okkar til sjálfstætt starfandi aðila í heilbrigðisþjónustu, sammælst um að bæta þurfi húsakost geðdeildanna, bæði á Landspítalanum og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.