uppbygging geðdeilda.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég skynja kannski einhvers konar pirring yfir því að verið sé að benda í aðrar áttir. Það er ekki gert til að drepa málinu á dreif, alls ekki. Það er einfaldlega gert vegna þess að ég hef á þessu skoðun. Ég tel málið vera brýnt en ég vil kannski líka skoða það frá aðeins öðru sjónarhorni en hv. þingmenn leggja til hér. Mér fannst því mikilvægt að taka þátt í umræðunni. Ég hef nefnt Reykjalund og hann er mér mjög kær en mér dettur líka í hug Vogur sem SÁÁ rekur og er afvötnunarspítali. Sá spítali er hluti af geðheilbrigðiskerfinu og hann hefur líka sérstaka staðsetningu og er fyrir utan Landspítalann. Hv. þingmaður kom einmitt inn á sjálfseignarstofnanir eða fyrirtæki og við höfum auðvitað marga aðila sem koma að alls konar mikilvægri þjónustu, annars vegar beint á sviði heilbrigðismála en líka oft félagslega tengt. Ég get nefnt Hlaðgerðarkot og Krýsuvík. Ef við erum t.d. að tala um fíknimeðferðir hef ég sjálf fylgt aðstandanda í gegnum það og fengið sýnishorn af mismunandi þjónustu og get hrósað geðsviði Landspítalans og fíknideildinni þar fyrir góða þjónustu. Það er því mín skoðun að það þurfi fjölbreytt úrræði í þessum málum.
Hv. þingmaður spyr: Getum við ekki öll verið sammála um að bæta þurfi húsakost geðsviðs Landspítala? Ég segi: Ég veit það ekki. En ef þú spyrð mig: Er ekki mikilvægt að bæta húsakost þar sem við sinnum geðheilbrigðismálum og meðhöndlum þá sem glíma við geðsjúkdóma? Þá segi ég: Já, allan daginn. Kannski er ástæða til að benda á það að öll þjónustan þarf ekki endilega að vera undir Landspítala. Með því er ég ekki að segja (Forseti hringir.) að eitthvert einkafyrirtæki úti í bæ eigi að sinna þjónustunni. Það gæti verið önnur opinber stofnun sem gerði það og einnig gæti samstarf áhugafólks (Forseti hringir.) um þessa sjúkdóma og hins opinbera komið til.