152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

ávana- og fíkniefni.

24. mál
[18:11]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og framsögumanni málsins kærlega fyrir seigluna í þessu máli og fyrir sína einörðu baráttu fyrir mannúð og kærleika til handa þeim sem glíma við fíkniefnavanda. Mín skoðun er sú að sá sem er í neyslu fíkniefna eigi við ákveðinn vanda að etja hvað það varðar. Nú kunna að vera skiptar skoðanir um það.

Ég ætla ekki að fara djúpt í saumana á þessu máli. Við höfum rætt þetta nokkrum sinnum hér í þingsal en það eru nokkur álitaefni sem mig langar til að koma inn á. Í fyrsta lagi snýst þetta um mannúð, algjörlega frá A til Ö. Þetta snýst um kærleika og þetta snýst um að koma fram við fíkla og spyrja: Hvað kom fyrir þig, í staðinn fyrir að spyrja hvað er að þér? Þar vitna ég í Gabor Maté sem er magnaður sálfræðingur sem hefur líka gert kvikmynd sem heitir, með leyfi forseta, The Wisdom of Trauma, og ég hvet alla til að horfa á þá mögnuðu mynd. Hann hefur t.d. farið inn í fangelsi í Bandaríkjunum, ferðast úti um allt þar og spyr svona spurninga: Hvar byrjaði þetta? Ég held, og þess vegna er svo gott að við séum í þessari umræðu beint á eftir umræðunni um uppbyggingu nýrra geðdeilda, að þetta byrji allt á einhverju áfalli. Ég held að fólk sem býr við mjög gott atlæti, er ekki að upplifa áföll í sínu lífi að nokkru leyti, auðvitað getur maður verið í einhverjum aðstæðum, en mig grunar að þeim mun þéttara aðhald og þess háttar sem þú færð sem býður ekki upp á einhvers konar áföll í æsku, þeim mun minni líkur séu á að þú leiðist út í harða neyslu fíkniefna.

Hér erum við auðvitað fyrst og fremst að horfa á þessa mannúð og þennan ótta sem fíklar glíma við og ég kynntist því, bæði í störfum mínum sem lögmaður og heyrði það þegar við vorum að fjalla um þetta í hv. velferðarnefnd á síðasta og þar síðasta þingi, að hjá virkum fíklum býr óttinn við að kalla á hjálp þegar eitthvað gerist og hafa leiðst af því dauðsföll. Fíklar þora ekki að hringja á sjúkrabíl vegna þess að þegar vitað er að um er að ræða samkvæmi er regla að lögreglan kemur fyrst til að tryggja vettvanginn áður en sjúkraflutningamennirnir koma inn og þá óttast fólk refsingu. Þetta bara liggur algjörlega ljóst fyrir. Þar verður óttinn, mögulega ertu á skilorði, mögulegt ertu á reynslulausn og mögulega óttastu bara lögregluna vegna fyrri samskipta.

Það sem kom líka í ljós í vinnu okkar í hv. velferðarnefnd var að stöku lögreglumenn, sem voru ýmist mótfallnir málinu eða ekki, eru engu að síður að beita afglæpavæðingu og brjóta með því lög. Það er svo sérstakt. Þegar við fengum frásagnir af því að á leiðinni með skjólstæðing í meðferð eða inn á geðdeild, skjólstæðing sem var í mikilli neyslu, var mögulega í vandræðum vegna neyslu sinnar, heimilaði lögreglumaðurinn skjólstæðingnum að losa sig við fíkniefnin á gólfinu í bílnum. Þetta gerði lögreglumaðurinn af mannúð en var algjörlega á móti þeirri mannúð sem við erum einmitt að tala fyrir hér. Þegar lögreglumanninum var bent á að hann væri að brjóta lög með þessu og það mætti í rauninni sækja hann til saka fyrir þetta þá varð hann ögn hvumsa og eiginlega orðlaus af því að hann skildi mjög vel mannúðina, að vera ekki að taka fárveikan einstakling og skella honum inn í fangaklefa fyrir að vera með fíkniefni á sér. En hann mátti í rauninni ekki gera neitt annað af því að það er ólöglegt.

En það eru ekki allir eins og þessi sem býr yfir mikilli mannúð. Ég var sem lögmaður kölluð um hádegisbil um helgi upp á lögreglustöð til að leysa út umbjóðanda og fara með umbjóðanda í skýrslutöku sem hafði verið að reykja eina jónu fyrir aftan Stjórnarráðið. Það var hans glæpur. Maður hugsaði í ljósi alls og í ljósi t.d. þeirrar umræðu sem við erum með í dag varðandi metoo, varðandi kynferðisbrotamál sem bíða í þrjú ár á borði lögreglunnar og fjölda annarra mála hvort tíma lögreglunnar sé mögulega betur varið en að vera að eltast við einstaklinga í bænum sem reykja jónu eða eitthvað álíka og tíma bara lögmanna og peningum skattborgaranna.

Auðvitað eru öfgarnar í sitt hvora áttina en grundvallaratriðið í þessu máli er þessi mannúð, að við séum ekki að refsa fárveiku fólki, að við reynum frekar að taka utan um það, búum til umhverfi þar sem þau treysta heilbrigðiskerfinu, treysta félagslega kerfinu, velferðarkerfinu, treysta lögreglu, af því það er ekki síst mikilvægt að þau treysti lögreglu og að þau treysti sér til að leita til lögreglu þegar á þau er ráðist eða eitthvað bjátar á í þeirra lífi, og treysta samfélaginu fyrir sínum veikleikum. Það er það sem við þurfum að byggja upp á Íslandi í dag.