152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

varamenn taka þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Líneik Anna Sævarsdóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þm. Suðvest., verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Bjarna Jónssyni, 4. þm. Norðvest., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í gær tóku því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í Suðvest., Eva Sjöfn Helgadóttir, og 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvest., Lilja Rafney Magnúsdóttir.

Eva Sjöfn Helgadóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.