152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

gögn frá Útlendingastofnun.

[13:39]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Líkt og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson benti hérna á á undan mér þá er þetta ekki einhver umræða sem er ný af nálinni. Þegar stjórnvöld neituðu að láta okkur fá þessi gögn þá vísuðu þau einmitt til þess að það hefðu verið miklar umræður um þetta við fyrri nefnd og létu í veðri vaka að um þetta hefði náðst einhvers konar samkomulag. Hins vegar liggur alveg ljóst fyrir að það eru stjórnvöld sem eru hér einhliða búin að ákveða það hvernig þingið á að haga sínum störfum. Þetta gera þau vegna þess að þingið hefur ekki gengist við ósk þeirra um það hvernig fyrirkomulagið skuli vera. Þetta er auðvitað helber vanvirðing við Alþingi. Útlendingastofnun vísar til ráðuneytisins sér til varnar, að þetta sé samkvæmt fyrirmælum ráðuneytisins. Þegar rætt er við ráðuneytið vísar það beint á Útlendingastofnun. Þetta er algerlega óboðleg vanvirðing við Alþingi Íslendinga og nauðsynlegt að forseti grípi inn í.