gögn frá Útlendingastofnun.
Virðulegi forseti. Allt frá því að dönsk-íslensku sambandslögin voru sett 30. nóvember 1918 hefur Ísland fengið viðurkenndan, þegnum sínum til handa, íslenskan ríkisborgararétt. Með lögum nr. 31/1919 hefur Alþingi Íslendinga haft tækifæri til að veita með lögum ríkisborgararétt til handa mönnum en í 4. gr. þeirra laga segir, með leyfi forseta:
„Veita má mönnum ríkisborgararétt með lögum. Fer þá um konu manns og börn þeirra eftir 3. gr., og um óskilgetin börn konu eftir 1. gr., nema lögin láti öðru vísi um mælt.“
Hún er kannski orðin aðeins úrelt þessi setning. En þetta hefur Alþingi nýtt sér nær undantekningarlaust tvisvar á ári í rúm 100 ár. Þessa mikilvægu hefð er nú verið að afnema, ekki af löggjafarvaldinu heldur af stofnun sem endurtekið hefur sýnt að hún hunsar lög sem Alþingi hefur sett (Forseti hringir.) og almenn mannréttindi þeirra sem hún á að sinna. Nú er kjörið tækifæri til að breyta Stjórnarráðinu, því ráðuneyti sem stoppar allt í Útlendingastofnun, og leggja þessa stofnun niður.