gögn frá Útlendingastofnun.
Forseti. Þetta mál snýst nefnilega um sanngirni. Við setjum lög hér á þingi um mjög flókið málefni, veitingu ríkisborgararéttar. Við sjáum ekki fyrir öll jaðartilfelli, allar aðstæður sem fólk kemur úr, sem geta uppfyllt skilyrði um réttmæta og sanngjarna umsókn um ríkisborgararétt. Þess vegna er þessi neyðarleið fram hjá kerfinu til þingsins um: En þessar aðstæður, eru þær viðeigandi fyrir þann einstakling sem sækir um þótt þær passi ekki inn í kerfið eins og það er uppsett? Og til að spyrja þingið um þetta, eins og kom fram hérna áðan, þá borgar viðkomandi 25.000 kr. En samt fær þingið ekki umsóknirnar. Hvers konar rugl er það? Eins og hæstv. fjármálaráðherra talaði um í Kastljósi í gær þá erum við með lög sem á bara að fara eftir. Þótt það hafi í því tilviki verið sóttvarnalög þá eru þetta alveg jafn gild lög. Við erum að hafa þann rétt af fólki að leita sér þess málskots sem við höfum sett í undanþágu gagnvart þessum lögum til að reyna að gæta sanngirni.