gögn frá Útlendingastofnun.
Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að blanda mér mikið í umræðu um það sem augljóst er, þingið á auðvitað rétt á því að fá send gögn sem því ber lögum samkvæmt. Ég ætla hins vegar að vekja athygli á öðru í þessum málaflokki almennt sem mér finnst vera mikill skortur á að sé tekið inn í umræðuna hér, sem er að það er auðvitað fullkomlega óeðlilegt hversu hátt hlutfall ríkisborgararéttarveitinga fer fram með lögum frá Alþingi. Það gefur tilefni til þess að skoða lögin sjálf. Ef vilji löggjafans stendur til þess að rýmka mjög verulega skilyrði þess að fá ríkisborgararétt á Íslandi þá á að breyta lögunum en ekki vera með upphrópanir hér á þingi um þau mál sem fengið hafa neikvæða afgreiðslu réttrar stofnunar á grundvelli þeirra laga sem Alþingi sjálft setti, að allir neitanirnar þurfi að koma til þingsins vegna þess að þingið ætli að fara aftur yfir það hvers vegna málin hafa ekki fengið afgreiðslu. Hérna höfum við í sumum tilfellum verið að tala um á annað hundrað veitingar ríkisborgararéttar (Forseti hringir.) með lögum sem er fullkomlega óeðlilegt ástand, vegna þess að inngrip löggjafans fram yfir eigin löggjöf um ríkisborgararétt (Forseti hringir.) hlýtur ávallt að vera algjört undantekningamál.