152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

gögn frá Útlendingastofnun.

[13:53]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra sagði að það ríkti óeðlilegt ástand og þá hélt ég að við yrðum allt í einu sammála vegna þess að það er óeðlilegt ástand í heiminum. Það hefur aldrei verið fleira fólk á flótta. Það er ein helsta ástæðan fyrir því að aldrei hafa fleiri þurft að sækja beint til Alþingis um ríkisborgararétt fram hjá þeim þröngu skilyrðum sem lög um útlendinga heimila vegna þess að fólk á flótta er ekkert endilega með fæðingarvottorðið með sér þegar það flýr stríð og átök og kemur hingað til Íslands. En, nei, það var víst ekki nálgunin hjá hæstv. ráðherra heldur hvernig hægt væri að rútta sem mestu af þessu yfir til Útlendingastofnunar, sem hefur sýnt það í störfum sínum í þessum málum að henni er ekki treystandi. Það er bara svo einfalt.

Í nafni góðs samstarfs samþykktum við að fresta afgreiðslu ríkisborgararéttar fram yfir áramót núna fyrir jól. Hvað fáum við á móti frá Útlendingastofnun? Að hún ætlar enn að draga lappirnar. Hún innheimtir 25.000 kr. af hverjum umsækjanda. (Forseti hringir.) Á annað hundrað manns sótti um fyrir jól. (Forseti hringir.) Það eru 3 milljónir sem íslenska ríkið hafði af fólki sem á réttmæta heimtingu á afgreiðslu sem því er neitað um af Útlendingastofnun. (Forseti hringir.) Ef ráðherrann ætlar að standa með Alþingi í liði þá vinnur hann bót á þessu strax.