152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

staðan í sóttvörnum.

[14:16]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn og við áttum þetta samtal hér í skýrslugjöf heilbrigðisráðherra um stöðu og horfur í faraldrinum. Hv. þingmaður dró fram tölur um virk og óvirk smit og mismun á því sem kemur fram í tölum af landamærum og innan lands. Ég hef ekki fengið það staðfest, svo að ég segi það hér og nú. En þannig eru reglurnar að ef þú veikist og ert skimaður með Covid-19 ferðu í einangrun og getur útskrifast, ef þú ert einkennalaus, innan sjö daga. Ég geri ráð fyrir að þessir 200 starfsmenn séu í einangrun þess vegna. En ég hef ekki fengið neinar staðfestar tölur um það sem hv. þingmaður dregur hér fram.