efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Stuðningsaðgerðir stjórnvalda til að draga úr efnahagslegum áhrifum heimsfaraldursins eiga sér enga hliðstæðu í hagsögu Íslands. Stuðningurinn birtist með skýrum hætti m.a. í 527 milljarða kr. halla ríkissjóðs síðustu tvö ár og fjárlögum sem gera ráð fyrir 186 milljarða kr. halla í ár. Hallinn sýnir svo ekki verður um villst að við höfum frekar gert meira en minna til að styðja við heimili og fyrirtæki, líkt og við sögðumst ætla að gera allt frá upphafi. Hallarekstur er hins vegar ekki fagnaðarefni. Hinn raunverulegi mælikvarði á árangur aðgerðanna er auðvitað staðan úti í samfélaginu. Þrátt fyrir mikið efnahagsáfall hafa ráðstöfunartekjur fólks aukist og kaupmáttur aldrei verið meiri, sérstaklega hjá þeim tekjulægri. Störfum hefur fjölgað hratt og gjaldþrot eru ekki fleiri en búast mætti við í venjulegu árferði. Ólíkt því sem gerst hefur víðast annars staðar þá hefur faraldurinn ekki leitt til aukins tekjuójafnaðar og það í hagkerfi sem var fyrir með einn mesta tekjujöfnuð í hinum þróaða heimi. Vextir hafa verið lágir í sögulegu samhengi, með tilheyrandi lægri greiðslubyrði heimilanna í landinu, og tekist hefur að halda verðbólgu innan hóflegra marka. Verkefnið næstu misseri er ekki síst að varðveita þennan stöðugleika.
Áhrif Covid-ráðstafana á ríkissjóð nema 215 milljörðum kr. á árunum 2020–2021. Beinn sértækur stuðningur við launafólk og fyrirtæki sem hafa orðið harðast úti í faraldrinum hefur til þessa numið um 75 milljörðum kr., en því til viðbótar hafa boðist ríkistryggð lán og skattfrestanir. Um 50 milljarðar kr. hafa farið til ferðaþjónustunnar, en þar af er beinn stuðningur til veitingageirans um 11 milljarðar kr. Við gerum ráð fyrir að nærri 2 milljarðar kr. bætist við nú á fyrstu mánuðum ársins með veitingastyrkjunum, sem eru til umfjöllunar hér á Alþingi, og lokunarstyrkjum sem hafa verið samþykktir í ríkisstjórn. Þá má ætla að kostnaður við framlengingu almennra viðspyrnustyrkja sem nú er boðuð fyrir sama tímabil gæti numið allt að 2 milljörðum kr. eða um 500 millj. kr. á mánuði fyrir mánuðina desember, janúar, febrúar og mars. Vinnumarkaðsaðgerðir hafa verið fjölbreyttar og hafa tekið mið af þörf í samfélaginu. Þannig fóru 28 milljarðar í hlutabætur og þegar hafa nærri 10 milljarðar farið í ýmsa ráðningarstyrki. Þegar mest lét voru þannig ríflega 8.600 starfssambönd studd af ríkissjóði. Núna er staðan allt önnur, atvinnuleysi hefur haldist undir 5% síðastliðna þrjá mánuði og eftirspurn eftir vinnuafli hefur aukist mjög. Ríkissjóður hefur auk þess greitt um 25 milljarða í tekjufalls-, viðspyrnu- og lokunarstyrki til um 3.500 fyrirtækja. Þessir styrkir hafa nýst ferðaþjónustunni sérstaklega vel auk þeirra sem gátu ekki veitt ýmsa persónulega þjónustu á fyrri stigum faraldursins, hvort sem um er ræða sjúkraþjálfun, hárgreiðslustofur eða líkamsræktarstöðvar.
Stuðningsaðgerðir ríkissjóðs áttu ríkan þátt í því að samdrátturinn varð ekki meiri árið 2020 og að getan til viðspyrnu var eins mikil og raun bar vitni árið 2021. Áberandi er hve þjóðarútgjöld á Íslandi drógust lítið saman í alþjóðlegum samanburði og hve einkaneysla hefur haldist sterk. Samhliða sterkum efnahagsbata hefur aðsóknin í úrræðin eðlilega minnkað. Í áliti Arnórs Sighvatssonar, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóra, á efnahagsaðgerðum stjórnvalda sem fengið var að frumkvæði þingsins segir að draga megi þá ályktun að stuðningsaðgerðir hins opinbera við heimili og fyrirtæki hafi heppnast vel og lítill samdráttur þjóðarútgjalda bendi til þess að glufur í þeim stuðningi hafi ekki verið stórar, eins og þar segir. Álit alþjóðlegra matsfyrirtækja, OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru á sama veg. Í þessum álitum hefur verið sérstaklega bent á mikilvægi góðrar stöðu Íslands fyrir faraldurinn. Árangurinn byggði þannig á traustum grunni ábyrgrar hagstjórnar undanfarin ár.
Verkefnið sem nú blasir við er að treysta grunninn á nýjan leik þannig að við getum brugðist við óvæntum áföllum framtíðar. Hversu vel það gengur er fyrst og fremst undir okkur sjálfum komið. Það skiptir máli að kynda ekki bál verðbólgu og efnahagslegs óstöðugleika með upphrópunum um ómarkvissar aðgerðir nú, þegar staðan er allt önnur en í upphafi faraldursins. Það fer sem sagt að skipta meira og meira máli að gera ekki um of, á sama hátt og miklu máli skipti í upphafi að gera alveg örugglega nóg.
Í ljósi takmarkana á tiltekna starfsemi og áhrifa yfirstandandi bylgju þessar vikurnar tel ég algerlega réttlætanlegt að ráðast áfram í afmarkaðan og tímabundinn stuðning. Þannig höfum við kynnt frestun staðgreiðslu og sérstakan stuðning við veitingafólk, eins og ég hef hér komið inn á, en þessi starfsemi hefur sætt miklum takmörkunum á opnunartíma og fjölda gesta. Sömuleiðis verða lokunarstyrkir áfram tryggðir þeim sem hefur verið gert að skella starfsemi sinni í lás og í morgun kynnti ég fyrir ríkisstjórn að leggja fram frumvarp um framhald almennra viðspyrnustyrkja. Með þessu er stutt við þá sem stuðning þurfa í afmarkaðan tíma og ekki í þeim mæli að setji stöðugleikann í uppnám. Frekari almennur umfangsmikill stuðningur, án sambærilegrar tekjuöflunar á móti, myndi hins vegar gera lítið annað en að ýta upp verðbólgu og þar með vöxtum í framhaldinu.
Eftir því sem þróttur hagkerfisins vex að nýju verður að byggja upp fjárhagslegt þrek ríkissjóðs og stöðva vöxt opinberra skulda. Það er forsenda þess að við getum tekist á við áskoranir framtíðarinnar. Mikilvægasta efnahagsaðgerðin nú felst í að skapa jarðveg fyrir frekari vöxt í hagkerfinu. Heimsfaraldurinn hefur verið dýrmæt áminning um mikilvægi fjölbreyttra stoða efnahagslífsins og þar eigum við áfram að sækja fram. Nýsköpun og hugverkaiðnaður hafa vaxið hratt síðustu ár og má með sanni segja að þar sé að verða til fjórða stoðin undir íslenskan efnahag. Við eigum tækifæri til enn meiri vaxtar á komandi árum bæði þar og annars staðar, ekki síst í hinum hefðbundnu greinum. Í þeim anda aukum við ekki aðeins framlög enn meira til mikilvægra málaflokka á borð við heilbrigðis- og velferðarmál í fjárlögum ársins, heldur setjum við sömuleiðis háar fjárhæðir í áframhaldandi endurgreiðslur rannsókna- og þróunarkostnaðar til að byggja undir framtíðarsókn, sköpun verðmætra starfa á næstu árum og áratugum.
Virðulegi forseti. Við höfum góða sögu að segja í efnahagsmálunum síðustu misseri, þrátt fyrir gríðarlega óvissu, sérstaklega í upphafi faraldursins. Óvissan hefur verið slík að við höfum bara á síðustu vikum verið að sjá ný afbrigði og við höfum verið að komast að niðurstöðu um það hversu skæð ný veiruafbrigði eru og hvaða áhrif þau hafa. Í dag er heilbrigðisráðherra að kynna breytingar á sóttvarnareglum. Þetta sýnir hversu kvikt umhverfið er og í því ljósi öllu vil ég meina að okkur hafi tekist einstaklega vel í efnahagsmálum að stilla aðgerðir í samræmi við stöðuna á hverju sinni. Þrátt fyrir allt þá er hægt að horfa björtum augum til komandi ára, þrátt fyrir þennan gríðarlega hallarekstur, því við höfum náð að skapa traustan grunn fyrir öfluga viðspyrnu samfélagsins.