efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að hér hefur verið ráðist í miklar mótvægisaðgerðir og við í Samfylkingunni höfum að mestu stutt og greitt fyrir þeim, jafnvel lagt til aðgerðir. Hlutabótaleiðin á sögu aftur til 2009 eða 2008, held ég. En að einhverju leyti skapast betri staða hér í dag af því að fræðingar sáu líka ekki fyrir hver hegðun neytenda yrði. En gerum ekki lítið úr aðgerðunum. Ráðherra sagði réttilega að það þyrfti að vanda í hvaða aðgerðir væri ráðist og hverjar ekki. Hann orðaði það, held ég, þannig að gera ekki um of og meinti með því að kynda ekki undir óþarfa þenslu og verðbólgu ef ég skil það rétt. Ég held að það sé alveg hárrétt. En í framhaldi af því langar mig þá að spyrja hvort hæstv. ráðherra telji að framlenging á átakinu Allir vinna, sem gæti kostað um 8 milljarða kr., flokkist kannski undir slíka óþarfa örvun til atvinnugreinar sem þarf ekki á því að halda og óþarfa neyslu almennings, hvort það hefði hreinlega verið nær að nota þessa fjármuni til að létta undir með þeim atvinnugreinum sem eru í raunverulegum vanda og jafnvel því fólki og þeim hópum sem eru í raunverulegum vanda til að auka líkurnar á því að allir séu sem best á sig komnir þegar við klárum þessa baráttu og til að viðhalda einhvers konar heilbrigðu jafnvægi á milli þessara stoða í atvinnulífinu. Hefðum við átt að verja þessum peningum öðruvísi?