152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[14:58]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var þegar ég var búinn að horfa á landsleikinn í gær sem ég hugsaði að nú væri gott að hafa Allir vinna í gangi en það var ekki svo gott. Allir vinna var auðvitað virðisaukaskattsátakið sem við vorum með. Ég tek því þannig að hv. þingmaður sé að tala um ráðningarstyrkina, stuðning til að ráða fólk af atvinnuleysisskrá o.s.frv. Er það ekki það sem hv. þingmaður átti við? (Gripið fram í.) Nei, gott og vel. Ef hér er rætt um Allir vinna þá gerðum við auðvitað breytingar undir lok síðasta þings þar sem við framlengdum að verulegu leyti þær endurgreiðslureglur þó að við tækjum ekki allt með, eins og t.d. endurgreiðslur vegna bifreiðaviðgerða og annað þess háttar. En við framlengdum að verulegu leyti endurbætur á eigin húsnæði og erum áfram með umfram 60% endurgreiðslur langt fram á þetta ár. Það átak mun því lifa alveg fram á haustið. Sumt af því fellur niður um mitt ár, annað lifir fram í september. Menn hafa líka verið að velta fyrir sér hvort við ættum að vera með þessar almennu stuðningsaðgerðir vegna ráðningarsambanda. Þar hef ég verið þeirrar skoðunar að atvinnuástandið í dag og eftirspurn eftir vinnuafli kalli ekki á slíkar aðgerðir. En Allir vinna-endurgreiðslufyrirkomulagið á virðisaukaskatti hefur reynst ágætlega. Það er engin spurning að með þeim miklu fjármunum sem ákveðið var að verja í það átak undir lok árs er verið að auka eftirspurn í samfélaginu. Það er engin spurning. Ég held að við höfum farið bil beggja, þ.e. að svara ákalli um að veita einhverja framlengingu á átakinu án þess þó að láta það gilda út allt árið og alls ekki láta það gilda lengur en það. Það er ágætt að muna að eftir að þetta sérstaka Covid-átak Allir vinna rennur sitt skeið þá tekur við 60% endurgreiðsla í mörgum tilvikum.