152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:01]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóða lýsingu á því sem er í pípunum. Ég deili þeirri skoðun með mörgum hér að margt hefur tekist vel til með þá viðspyrnu og með þá styrkingu stoðkerfa á erfiðum tímum sem við höfum fylgst með og blasa við. Það var eflaust mikil gæfa að fá hin svokölluðu stöðugleikaframlög upp á nokkur hundruð milljarða, kannski 600, á undangengnum misserum, þannig að búið stóð betur en ella og var betur í stakk búið að takast á við þessa óvæntu erfiðleika.

Ég veit að það eru í vændum fréttir, ekki bara af því sem stendur til að gera fyrir veitingageirann og hótelgeirann, heldur fyrir það huldufólk í stoðkerfum upplifunargeirans, þá menningargeirans sérstaklega, fólkið sem stendur á bak við sviðið, tekur ekki beinan þátt í flutningi eða uppákomum. Nú er ég að tala um hljóðmennina, ljósamennina, hljóð- og kerfisleigurnar og allt þetta sem gerir þetta mögulegt, þennan stærsta vaxtarbrodd atvinnulífsins, upplifunargeirann í þessari deild menningarinnar. Ég þykist vita að sumt af þessu fólki, sumt af þessum fyrirtækjum, eigi ekki beinan aðgang að þeim lausnum sem boðaðar hafa verið. Mig langar að spyrja ráðherrann hvort til kynni að standa að búa til lausnir sem hæfa myndu þeirri tegund fyrirtækja.