efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Þannig að ég taki þessa spurningu bara strax sem kom fram í lok andsvars þá átti ég einmitt samtal við félagsmálaráðherra í morgun um að hann er að fara að setja vinnuna af stað og við vorum að spjalla um að það styttist í að við myndum taka það upp á formlegum vettvangi í ráðherranefnd. Það er þá félagsmálaráðherra sem mun setja vinnuna af stað og ég geri ráð fyrir því að það verði strax settur mikill kraftur í það. En það er alveg rétt að við höfum orðið af miklu á meðan heimsfaraldurinn hefur geisað og það hefur ekki komið síst við tekjulága þegar þeir eru skertir og möguleikar þeirra takmarkaðir til að njóta samvista við aðra. Það er ekki bara tekjumissir í menningargeiranum og víðar í atvinnulífinu sem við eigum að vera að horfa á, það eru auðvitað bæði efnahagslegir og félagslegir vinklar, efnahagsleg afkoma heimilanna, fyrirtækjanna og ýmsir félagslegir vinklar sem hljóta að koma til skoðunar. Við höfum eftir bestu getu reynt að fylgjast vel með því. Við höfum auðvitað sett stóraukin framlög inn í geðheilbrigðismál á meðan á þessum faraldri hefur staðið og sú viðbót fylgir okkur inn í þetta ár. En já, vonandi erum við að sjá fyrir endann á áhrifum þessa heimsfaraldurs. Við skulum vona það og ég ætla a.m.k. að leyfa mér að vera bjartsýnn um það. Það gleður mig mjög að heyra að heilbrigðisráðherrann sér fyrir sér að geta nú kynnt til sögunnar einhverja sýn til næstu vikna og mánaða sem opni í leiðinni aftur út í eðlilegt líf.