152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:10]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Aðgerðir hafa heppnast vel, það eru ekki stórar glufur en glufur voru það samt. Listamenn lentu einmitt í ýmsum glufum, íþróttastarf, tómstundastarf, leigubílstjórar, ýmislegt fór úrskeiðis. Það er okkur hollast að fara vel yfir það til þess að ganga til verks varðandi þær glufur á næstunni. Hæstv. ráðherra talar um að það sé hins vegar stærsta verkefnið á næstunni að stöðva vöxt opinberra skulda. Það er vissulega mikilvægt starf en ég vil vekja sérstaka athygli á því að í upphafi faraldursins var markmiðið að vaxa út úr vandanum, ekki bara að stöðva skuldasöfnun heldur að vaxa út úr vandanum, vegna þess að við þurfum vissulega líka að borga skuldirnar. Það er ekki nóg að stöðva skuldasöfnunina.

Þegar ég heyri „að vaxa út úr vandanum“ skil ég það á þann hátt að vöxturinn, sem stefna stjórnvalda býr til, borgi niður skuldirnar. Það er þá umframvöxturinn frekar en eðlilegt ástand ef einungis væri gripið til sjálfvirku sveiflujafnaranna og þeirra augljósu viðbragða sem tilefni var til. Vandinn er hins vegar sá að við höfum aldrei fengið útskýringu á því hvaða stefna stjórnvalda býr í raun til það svigrúm að vaxa út úr vandanum. Ég kalla hér með eftir því.

Við sjáum vonandi fyrir endann á þessum faraldri. Þá er líka tími fyrir stjórnvöld til að útskýra hvaða aðgerðir stjórnvalda eru til þess gerðar að borga niður þær skuldir sem við höfum stofnað til til að koma til móts við kostnaðinn sem orðið hefur af faraldrinum.