efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Í upphafi faraldursins, í fyrstu aðgerðum ríkisstjórnarinnar, voru 1,5 milljarðar lagðir í nýsköpun, 3 milljarðar í markaðsátak fyrir ferðaþjónustuna. Okkur í stjórnarandstöðunni fannst þetta nú frekar lítilfjörlegt ef þetta átti að duga til að vaxa út úr vandanum og lögðum því til 9 milljarða til nýsköpunar. Það sýndi sig síðan að það var full þörf á og möguleikar til að nýta það fjármagn til nýrra tækifæra. Ríkisstjórnin hlustaði ekki alveg á það en jók þó magnið úr 1,5 milljörðum til nýsköpunar upp í 3 milljarða í fyrsta áfanga. En við sjáum nú að einhverjar af helstu aðgerðaáætlunum stjórnvalda, t.d. til nýsköpunar, sem eru í formi þeirra endurgreiðslna sem hæstv. ráðherra talaði um í flutningsræðu sinni, eru rautt flagg hjá Skattinum. Það er einmitt ekki góð aðferð til þess að hvetja til nýsköpunar, hún er jafnvel notuð til að svíkja undan skatti. Við í minni hlutanum lögðum til allt aðrar leiðir til að efla nýsköpun. Ég heyri alveg það sem hæstv. ráðherra segir, en ég vil fá að sjá hvernig þessar aðgerðir borga upp þessa tugi — við erum örugglega komin í hundruð milljarða sem við þurfum að borga til baka — og á hversu löngum tíma þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar borga þetta til baka. Slíka áætlun vil ég sjá stjórnvöld leggja fyrir þingið: Sjáið, hérna eru okkar aðgerðir. Við borgum þetta til baka á 30 árum. Ágætt. Er það kannski á tíu árum? Veit það ekki. Þetta eru svör sem þingið þarf að fá til þess að vita í rauninni hvernig við eigum að fara með fjármuni almennings á næstu árum.