152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:19]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það blasir einhvern veginn við manni núna, a.m.k. er spurningin alveg gríðarlega áleitin, hvort við séum ekki komin á þann stað í faraldrinum að vel sé hægt að fara að huga að öðruvísi sóttvörnum og þá eftir atvikum efnahagsaðgerðum í framhaldinu. Ég, eins og margir aðrir landsmenn, hlustaði af athygli á hæstv. fjármálaráðherra í Kastljósi í gær þar sem hann var að tala um þær takmarkanir sem settar voru á síðast. Mér fannst hæstv. ráðherranum mælast þar vel. Hann kom með röksemdir fyrir því að þær ráðstafanir sem þá var gripið til, til að mynda að hafa tíu manna samkomutakmarkanir — að það væri nánast ekki lagastoð undir því enn þá. Þær forsendur sem lágu að baki þeirri ákvörðun voru m.a. spár um það hvernig faraldurinn myndi þróast og hver áhrifin yrðu á spítalann. Það liggur alveg fyrir að við erum langt undir bjartsýnustu spá hvað varðar innlagnir á spítalann og síðan innlagnir á gjörgæslu sem segir okkur að við erum í allt öðrum forsendum í dag en þá. Hæstv. ráðherra tók svo til orða að ekki væri lagagrundvöllur fyrir því að vera með þessar skerðingar lengur. Hann taldi það skyldu sína að benda á það við ríkisstjórnarborðið en síðan erum við á sama tíma með þá skoðun heilbrigðisráðherra að það liggi ekkert á að kynna neina afléttingaráætlun fyrr en í fyrsta lagi á föstudaginn og svo liggur fyrir afstaða sóttvarnalæknis um að ekki þurfi að gera þetta fyrr en einhvern tíma í næstu viku, ég held að það sé 3. febrúar sem talað er um í því samhengi.

Því langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra, vegna þess að allar efnahagsaðgerðir hvíla á þessu: Er það skilningur hans að aðgerðirnar séu þá orðnar þannig að þær styðjist ekki við lög og stjórnarskrá þar af leiðandi líka? Er það þá þannig að hæstv. ríkisstjórn er núna næstu daga fram í næstu viku, ef afléttingaráætlunin hljómar þannig, (Forseti hringir.) að brjóta lög á þeim fyrirtækjum sem eru með verulega skerta starfsemi eins og staðan er núna miðað við takmarkanir sem kynntar voru síðast? (Forseti hringir.) Mun hæstv. ráðherra styðja þau lögbrot áfram?