152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:21]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er þeirrar skoðunar að það skipti gríðarlega miklu máli hverju sinni að það liggi fyrir á hvaða grundvelli við tökum ákvarðanir sem þrengja að atvinnustarfsemi eða persónufrelsi fólks og leggja mönnum línurnar um það hversu margir mega koma saman o.s.frv. Í tilvikinu sem hér er verið að vísa til var þetta mjög skýrt. Við getum lesið um það í minnisblaði landlæknis að það var á ákveðnum forsendum, með ákveðin spálíkön undirliggjandi, sem þessi ákvörðun var tekin. Þess vegna held ég að það geti ekki verið umdeilt að þær forsendur séu brostnar og það kallar á viðbrögð. Mér finnst sóttvarnalögin sem voru sett á Alþingi vera mjög skýr um þetta og það er fagnaðarefni að við skyldum hafa gengið í það verk að þétta þann lagabálk. Reyndar er ég þeirrar skoðunar að við hefðum átt að ganga lengra. Þegar við horfum núna til baka og skoðum sóttvarnalögin, þessi samskipti og hvernig ákvarðanir eru teknar, þá er ég þeirrar skoðunar að við hefðum átt að ganga talsvert lengra í að þétta samtalið milli stjórnkerfisins og þingsins. Mín skoðun er sú, eftir allt það sem á undan er gengið, að þegar verið er að þrengja mjög að réttindum sem eru varin í stjórnarskrá þá ætti að fara fram um það meiri umræða á þinginu. Best færi á því að tillögurnar væru lagðar fyrir þingið til afgreiðslu, t.d. að þingsályktunartillaga kæmi hér fyrir sem væri afgreidd í einni umræðu og einni atkvæðagreiðslu. En um það mál sem er spurt um sérstaklega, og spurt er hvort ég sé þeirrar skoðunar að hér sé þá áfram lögbrot, þá brást ráðherrann við í dag. Hann gerði meiri háttar tilslakanir á reglunum sem hafa verið í gildi. Hann gerði það með því að hætta sóttkví hjá þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti utan heimilis. Það er ekki annað hægt að segja en að það sé viðbragð við þeim upplýsingum sem við nú höfum. (Forseti hringir.) Svo er boðað síðar í þessari sömu viku að stíga frekari skref. Ég tel því að ráðherrann hafi brugðist við. Það er síðan alltaf álitamál í hvaða röð hlutirnir eiga að gerast.