efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Áhugavert að heyra svarið. Ég fagna þessu sem sagt er um samskipti við þingið. Mér hefur fundist vanta talsvert upp á það að þingið hafi verið með í ráðum þegar við höfum verið að ræða þessar miklu ráðstafanir sem leggjast af miklum þunga ekki bara á ríkissjóð heldur líka fólkið og fyrirtækin í landinu. Ég er sammála því að það komi vel til greina að það sé hreinlega þingsins að staðfesta þær ákvarðanir sem teknar eru. Mér fannst samt spurningunni ekki alveg svarað vegna þess að yfirlýsing ráðherrans var svo rosalega skýr í Kastljósi í gær. Við erum komin á þann stað að við erum farin að brjóta lög. Það að við séum að brjóta lög á fyrirtækjum og fyrirtækjaeigendum, sem eru með rekstur í gangi og geta ekki sinnt honum sem skyldi út af þeim takmörkunum sem eru í gangi, kallar á þá ábyrgð að við afléttum takmörkununum strax. Að bíða í þrjá daga. Að bíða þar til í næstu viku er verulega vont. Það ósætti sem er greinilega á milli annars vegar Sjálfstæðisflokksins og hins vegar VG og Framsóknar í ríkisstjórninni þegar kemur að þessum málum getur ekki átt að enda að með því að pattstaðan liggi hjá fyrirtækjum og fólki í landinu og það þurfi að bíða á meðan greitt er úr einhverjum ágreiningi, þegar sú skoðun fjármálaráðherra liggur fyrir að um hreint og klárt lögbrot sé að ræða. Ég myndi gjarnan vilja að hann myndi bregðast aðeins betur við þessu. Þessar tilslakanir á sóttkví sem talað var um í dag breyta engu um stöðu þessara fyrirtækja í mörgum tilfellum, þau eru áfram ofurseld þeim ráðstöfunum sem gripið var til síðast og ekki lengur eru neinar forsendur til að halda í gildi.
Svo langaði mig líka aðeins að spyrja um það sem fram kom í grein heilbrigðisráðherra og forstjóra spítalans um að spítalanum hafi verið veitt svigrúm til þess að bjóða upp á greiðslur fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar og talað um að sú aðgerð muni að öllum líkindum auka mönnun um 20–30%. (Forseti hringir.) Af hverju hefur þetta ekki verið gert með jafn skilvirkum hætti fyrr í faraldrinum? (Forseti hringir.) Og ef það hefði verið gert, er þá ekki algerlega einboðið að það hefði verið hægt að fara varlegar í allar takmarkanir (Forseti hringir.) og þar af leiðandi sparað ófáar krónurnar, ófáa milljarðana fyrir ríkissjóð?