152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:26]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér finnst að álagsgreiðslur í heilbrigðiskerfinu séu eðlilegar og við höfum reyndar á fyrri stigum máls afgreitt sérstakar fjárveitingar til þess. Ég get bara sagt að það hefur ekki staðið á fjárheimildum til þess að þetta væri gert. En það er betra að heilbrigðisráðherra geri grein fyrir þessu af því að ég er ekki inni í öllum smáatriðum þess hvernig þetta varð til. Ég styð það hins vegar mjög og mér finnst það eðlilegt.

Varðandi lögin þá er þetta bara mín skoðun. Ég held að ég hafi verið nokkuð skýr um það að þegar verður alger forsendubrestur á ákvörðunum sem þrengja að atvinnustarfsemi eða persónufrelsi fólks þá verður að bregðast við og það verður á endanum að vera mat ráðherrans og ég verð að segja að hann kemur hérna með nokkuð stórt útspil í dag sem varðar sóttvarnirnar. Þegar þessi mál eru skoðuð þá verður maður auðvitað að nálgast þau dálítið heildstætt. Við erum með ýmiss konar takmarkanir, þær birtast okkur í einangrun og sóttkví og við erum með samkomutakmarkanir sem ná til einkaaðila en líka atvinnurekstrar og tiltekinna tegunda starfsemi. Hjá mér hefur sú skoðun verið vaxandi að í allri umræðu um þessi mál þá höfum við snúið hlutunum aðeins á hvolf. Það verður að muna út frá hverju lögin ganga. Þau ganga út frá því að allar slíkar takmarkanir séu algert neyðarbrauð. Þess vegna stendur í lögunum að um leið og skilyrði eru ekki lengur til staðar til að þrengja að hlutum, hvort sem er atvinnustarfsemi eða samkomu einstaklinga, þá beri strax að aflétta. Það er þetta sem ég er að vekja athygli á. Með sama hætti segi ég varðandi ákvarðanatökuna í þessu: Mér finnst að hér hafi yfir tíma þroskast dálítið sá skilningur að þessar ákvarðanir séu teknar af sóttvarnalækni en lögin segja það alls ekki. Lögin segja að hann sé bara með sóttvarnainnleggið til ráðherrans og (Forseti hringir.) ráðherranum beri að horfa breiðar yfir sviðið og svo er það mín skoðun að ráðherrann ætti að koma og eiga það samtal hérna í þinginu og afgreiða málið þar.