152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:28]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ræða hæstv. ráðherra og fyrri yfirlýsingar kalla á nokkrar spurningar. Hæstv. ráðherra nefndi það að ójöfnuður hefði ekki aukist hvað varðar tekjur einstaklinga. Hins vegar hefur ójöfn staða fyrirtækja verið að aukast jafnt og þétt í þessum faraldri og þetta var raunar þegar orðið mjög mikið áhyggjuefni áður en faraldurinn hófst. Þessi ríkisstjórn hefur allan sinn feril lagt á nýjar kvaðir, nýjar reglugerðir, nýjar álögur sem hafa skekkt samkeppnisstöðu fyrirtækja, bitnað á þeim minni og nýst þeim stærri. Nú í faraldrinum hefur staða stærstu fyrirtækjanna, alþjóðafyrirtækjanna sem treysta á alþjóðavæðinguna, styrkst jafnt og þétt. Eigendur þeirra hafa tvöfaldað eigur sínar á meðan þeir sem eru að reyna að halda litlum fyrirtækjum á floti hafa lent í enn meiri vörn en áður.

Hvað ætlar þessi ríkisstjórn að gera, ef eitthvað, til að rétta samkeppnisstöðu minni fyrirtækjanna sem veita auðvitað langflestum atvinnu? Það er ekki að sjá að lögð hafi verið drög að því í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, þvert á móti; frá hæstv. ráðherra streyma atriði sem eru til þess fallin að gera rekstur þessara fyrirtækja enn erfiðari. Hæstv. ráðherra nefndi að umhverfið væri kvikt og að það væri erfitt að sjá fyrir í hvað stefndi. Hann hefur þó reyndar tekið það fram að hann vildi sjálfur sjá meiri framtíðarsýn frá eigin ríkisstjórn.

Nú höfum við séð breytingar á sóttvörnum. Þær voru skyndilega hertar nokkrum dögum eftir að þær voru rýmkaðar án þess að neinar tölur sýndu fram á hvers vegna það væri. Svo eru þær rýmkar aftur núna, en bara hluta, sama dag og fjöldi smitaðra er í hámarki. Er ríkisstjórnin fyrst og fremst að taka ákvarðanir út frá umræðunni í samfélaginu með samfélagsmiðlum fremur en að hafa lagt línurnar um einhverja framtíðarsýn, eins og meira að segja hæstv. ráðherra kallaði eftir?