efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég ætla að segja, um stöðu smærri fyrirtækja almennt, að mér finnst merkilegt hvað okkur hefur tekist að verja hana. Það birtist okkur t.d. í því að gjaldþrot fyrirtækja í gegnum þennan faraldur eru ekki umfram það sem vænta má bara í venjulegu árferði. Þetta er þrátt fyrir að við séum stödd í heimskreppu. Það er alveg ótrúleg staðreynd. Við sjáum líka á dreifingu stuðningsaðgerða stjórnvalda að þau teygja sig mjög vel til smærri rekstraraðila. Viðspyrnustyrkirnir, tekjustyrkirnir eru með þannig hámarksfjárhæðarþak á mánuði að öllum má vera ljóst að þetta er úrræði sem smíðað er fyrir smærri fyrirtækin og jafnvel einyrkja. Það sem hefur verið gert til stuðnings stærri fyrirtækjum — ef ég nefni hér það sem í upphafi hétu brúarlán og hafa þróast yfir í viðbótarlán eru það úrræði sem hafa gagnast örfáum fyrirtækjum.
Hins vegar gerist það oft, þegar svona djúpar efnahagslægðir verða, ég tala nú ekki um í geira eins og ferðaþjónustunni sem hefur fengið mesta höggið, og það er alveg rétt hjá hv. þingmanni, að upp úr því kemur dálítið breytt mynd. Það er ekki óþekkt í sögunni að það leiði til aukinnar hagræðingar, menn leiti allra leiða til að sameina og það fækki samkeppnisaðilum. Það er ástæða til að fylgjast aðeins með þessu. En það kann ekki að öllu leyti að vera afturför í þessu fólgin vegna þess að það voru vísbendingar um að fyrir heimsfaraldurinn væru ótrúlega margir aðilar starfandi í ferðaþjónustu án fullnægjandi afkomu.
Það sem við heyrum hins vegar frá stóru viðskiptabönkunum í dag er að staðan endurspegli alls ekki heimsfaraldur, sem segir mér að stuðningsaðgerðir stjórnvalda hafa skilað sínu. Vanskil eru í algjöru lágmarki í dag.