efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Stuðningsaðgerðirnar hafa verið mikilvægar og það var gríðarlega mikilvægt að ríkið væri í stakk búið til að ráðast í slíkar aðgerðir þegar faraldurinn hófst. En það gerðist ekki af sjálfu sér, það gerðist vegna sérstakra ráðstafana. Nú hins vegar þykir mér skorta á ráðstafanir til að takast á við framhaldið. Þrátt fyrir að hæstv. ráðherra lýsi því hér í ræðu sinni að mikilvægt sé að huga að skuldastöðu ríkissjóðs og aukinni tekjuöflun þá sést það ekki á því sem ríkisstjórnin leggur fram. Nú þegar gert var ráð fyrir að farið yrði í að aflétta hindrunum vegna faraldursins og að hagvöxtur myndi aukast töluvert þá gerir þessi ríkisstjórn engu að síður ráð fyrir viðvarandi hallarekstri ríkisins. Hún hefur náð, ekki hvað síst á tímum þessa faraldurs, að fjölga opinberum stöðugildum um 9.000 en á sama tíma að fækka stöðugildum í einkageiranum um hátt í sömu tölu. Með öðrum orðum: Þessi ríkisstjórn hefur umfram aðrar, hvort sem litið er til heildarútgjalda ríkissjóðs, sem markast auðvitað ekki að öllu leyti af faraldrinum þegar litið er til framtíðar, eða fjölgun opinberra starfsmanna og fækkun starfsmanna í einkageiranum, stækkað báknið. Með hvaða hætti hyggst ríkisstjórnin snúa þessari þróun við? Okkur skortir svör við því.
Aðeins þá aftur að þessu með lögmæti aðgerða, til að mynda tíu manna takmörkun á það hversu margir megi koma saman, jafnvel þó að um sé að ræða mikilvæg verkefni, þá spyr ég hæstv. ráðherra: Þegar fullskipað er á ríkisstjórnarfundi, hversu margir einstaklingar mæta á þá fundi? Ég geri mér grein fyrir að ríkisstjórnin lítur svo á að hún sé að vinna að mikilvægum verkefnum en það eru margir að vinna að mikilvægum verkefnum og hæstv. ráðherra hefur nú velt upp þeirri spurningu (Forseti hringir.) hvort það sé yfir höfuð löglegt að takmarka slíkt.