efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Þetta eru áhugaverðar umræður sem hafa farið fram hérna í dag. Ég ætla bara að segja varðandi það sem er fram undan að vel má vera og ég efast ekki um að hægt sé að fækka opinberum starfsmönnum að einhverju leyti en hins vegar þurfum við líka að fjölga þeim talsvert mikið, m.a. í heilbrigðisgeiranum. Það er verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. Jafnvel þó að því yrði að einhverju leyti ýtt út á markaðinn þá er jú auðvitað ríkið að borga fyrir þá þjónustu samt sem áður, þannig að óbeint eru þeir þá opinberir aðilar.
Ég verð að segja að ég gleðst yfir því í dag að við erum komin hingað eftir að hafa tekið góðar ákvarðanir í gegnum tíðina, byggðar á reynslu og þeim sem betur þekkja til. Ég held að það hafi verið góð ákvörðun á sínum tíma að fara þá leið sem hefur m.a. orðið til þess að við erum hér stödd í dag. En mig langaði kannski að velta því upp með hæstv. ráðherra, af því að hann fór í ræðu ágætlega yfir hvað gert hefur verið og hvers konar styrkir og annað slíkt hefur verið í boði, að það skýtur upp kollinum gömul tillaga. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar hefur verið að kalla eftir því sem var notað eftir hrun til að vinna úr skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja, og eins og við munum þá var það nýtt af ansi mörgum, og hét Beina brautin. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvað honum finnst um þá leið og hvort hún eigi við, af því að ég heyrði það sem hann sagði, ekki að tala um almenna leið heldur frekar sértækar leiðir eins og við höfum verið að gera. En hér er verið að kalla eftir einhverju skapalóni þannig að það verði metið hvaða fyrirtæki geti náð viðkomandi viðmiðum og það verði fengnir aðilar að borðinu til að taka ákvörðun um hvort þetta sé vænleg leið eða ekki.