efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég tel að aðstæður séu töluvert ólíkar því sem átti við þegar leið Beinu brautarinnar var valin. Í fyrsta lagi hafði það dálítið með það að gera hvernig við komum á fót stofnefnahagsreikningi nýju bankanna, Landsbankans og Íslandsbanka og reyndar Arion banka. En þarna var m.a. verið að vísa til þess að kröfur á fyrirtækin í landinu hefðu verið færðar á mjög lágu matsvirði inn í bankana, sem birtist okkur reyndar síðar í endurmati eigna bankanna sem mikill hagnaður, og þess vegna væri mjög rúmt svigrúm inni í nýstofnuðu bönkunum til að koma betur til móts við fyrirtækin án þess að þau þyrftu að taka á sig mikið högg. Þetta held ég að hafi verið einn grunnurinn að því að þessi leið var farin og upp úr þessu urðu til eins konar sameiginleg viðmið sem voru í raun og veru innihaldið í Beinu brautinni, sameiginleg viðmið um það hvernig menn gætu fengið leiðréttingu skuldastöðu sinnar í fjármálakerfinu. Ég átta mig ekki alveg á því þegar vísað er til þessa úrræðis hvernig það ætti heima í dag nema jú, ég hef svo sem átt fundi þar sem það er útskýrt fyrir mér að menn telja að safnast yfir þennan tíma heimsfaraldursins upp sú skuldastaða við fjármálafyrirtækin sem erfitt verði fyrir viðkomandi fyrirtæki að eiga við. En í mínum huga á algjörlega eftir að reyna á það í samtali við fjármálafyrirtækin sjálf fyrst hvernig úr því spilast. Hérna er kannski fyrst og fremst verið að kalla eftir aðkomu ríkisins sem einhvers konar stóra bróður sem líti yfir öxlina á bönkunum og horfi djúpt í augun á þeim og segi: Heyrið þið, gerið nú meira en minna, (Forseti hringir.) annars verða af því einhverjar afleiðingar. (Forseti hringir.) Ég hallast að því að markaðurinn hljóti að finna lausn á þessu. (Forseti hringir.) Fyrirtæki sem eiga sér lífvænlega framtíð hljóta að fá skilning í þessu samtali.