efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Ég er nokkuð sammála honum með það og mér fannst dálítið sérstakt að lesa um að þessi aðferð væri dregin upp úr hattinum núna. Sannarlega er þarna skuldahengja. Á fundi atvinnuveganefndar í morgun var ferðaþjónustan einmitt með nýútgefna skýrslu vegna ársins 2020, og reyndar fram á 2021 líka, og þeir eru að fylgja því eftir núna bara í komandi viku. Þar kom einmitt fram að það eru mjög fá fyrirtæki, eins og ráðherrann hefur rakið hér, sem hafa farið í þrot en voru sennilega einhver komin í erfiða stöðu fyrir Covid sem þarf þá að vega og meta núna. Ég held að þetta sé ekki eitthvað sem við eigum endilega að fara í, alla vega ekki sem fyrsta val.
Hæstv. ráðherra kom í sinni ræðu inn á þetta með að kynda ekki bál verðbólgu. Þegar við höfum verið að tala um þær aðgerðir sem við höfum verið að vinna með, að þær séu til þess fallnar að verðbólgan fari ekki af stað af því að þetta er auðvitað — ja, ég held að ég hafi ekki lifað tíma þar sem vextir hafa verið jafn lágir og raun ber vitni. En auðvitað hefur maður áhyggjur af vaxandi verðbólgu og hækkandi vöruverði og innflutningi og öðru slíku sem við sjáum núna fara upp úr öllu valdi. Birgjar eru að tilkynna að fram undan séu gríðarlega miklar hækkanir, m.a. á matvöru og öðru slíku. Auðvitað hefur maður áhyggjur af því, af því að fram undan eru kjarasamningaviðræður og ýmislegt fleira, að það gæti orðið okkur erfitt að halda verðbólgunni niðri. Þannig að hvað er það sem við þurfum? Ég átta mig á því að við getum auðvitað ekki farið í endalaus útgjöld til að þenslan verði ekki of mikil en hvað er það helst sem ráðherrann telur að þurfi að eiga sér stað þannig að við missum ekki verðbólguna fram úr okkur?