152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:44]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem kannski helst einkennir stöðuna í efnahagsmálum í augnablikinu er að við höfum séð þó nokkuð þróttmikla starfsemi á flestum sviðum. Það er helst í ferðaþjónustunni sem við sjáum enn að það vanti töluvert mikið upp á fyrri veltutölur. Við höfum séð töluvert kraftmikla einkaneyslu. Jólaverslunin var, held ég, í mörgum tilvikum fram úr væntingum rekstraraðila og í þessari viku hafa verið að berast fréttir af inneign landsmanna í bankakerfinu. Eins og ég rakti áðan þá sýnist mér að vanskil séu mjög lág í bankakerfinu. Það er ekkert í tölum fjármálakerfisins sem segir okkur að það sé einhver kreppa í gangi, þess vegna skiptir mjög miklu máli að ríkissjóður sé núna ekki um of að beita sér fyrir aðgerðum eða leiða í lög aðgerðir sem eru að fara að auka spennustigið í hagkerfinu. Það er helst og einkum þar sem menn eru enn í sárum og að þessu eru nýjustu aðgerðir okkar sniðnar. Þær beinast að aðilum sem við vitum að hafa sætt mikilli skerðingu. Okkar úrræði segja að það sé skilyrði fyrir inngöngu í úrræðið að viðkomandi hafi orðið fyrir miklu tekjufalli o.s.frv. En ef við myndum fara að auka samneysluna mjög mikið á sama tíma og Seðlabankinn hækkar vexti þá erum við að bjóða heim hættunni á að hér verði viðbótarverðbólga vegna ríkisfjármálanna. Það er það sem við þurfum að passa okkur á. Svo þurfum við einhvern veginn að ná góðum takti við vinnumarkaðinn þannig að allir axli sína ábyrgð á því að hemja verðbólguna og koma í veg fyrir að það gerist (Forseti hringir.) að vegna innfluttrar verðbólgu sé farið fram á launahækkanir sem engin innstæða er fyrir í hagkerfinu.