efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Við erum að ræða hér efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid en ég vil samt byrja á því að fagna yfirlýsingu fjármálaráðherra sem lýsti því yfir áðan að Alþingi ætti framvegis að fá víðtækara hlutverk í umræðum og ákvörðunum um sóttvarnir. Það er nokkuð sem margir hér í þinginu hafa lengi talað fyrir. Ég vona að á endanum náist breið samstaða um þetta við endurskoðun á sóttvarnalögum, þ.e. að allar verulega íþyngjandi sóttvarnatakmarkanir þurfi að fá staðfestingu annaðhvort þingsins í heild eða þá þingkjörinnar nefndar. Það er miklu eðlilegra en það ráðherraræði sem hefur ríkt í faraldrinum af því að um leið og við þurfum að hlusta á sérfræðinga þá verðum við að muna að stjórnarfarið okkar er einfaldlega þannig að ábyrgðin á hvers kyns takmörkun stjórnarskrárvarinna réttinda getur aldrei legið annars staðar en hjá lýðræðislega kjörnum fulltrúum.
Nú erum við að ræða um efnahagsráðstafanir og ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir ágæta yfirferð áðan þótt brandarinn um handboltaleikinn og Allir vinna hefði mátt missa sín. En auðvitað er það þannig að ef hæstv. fjármálaráðherra hefði gert allt vitlaust hérna, kolvitlaust, þá litu hagtölurnar allt öðruvísi út. Þá væri atvinnuleysi meira, þá hefðu gjaldþrotin verið fleiri, þá væru ráðstöfunartekjur fólks lægri og staða ríkissjóðs verri. Auðvitað er það þannig. Það réttlætir samt ekki og afsakar ekki þann skaða sem var unninn hérna í upphafi faraldursins með hægagangi og fálmkenndum viðbrögðum. Það er einfaldlega staðreynd að þessa örlagaríku mánuði vorið 2020 hreyfði ríkisstjórn Íslands sig miklu hægar og gerði miklu minna til að verja fólk og fyrirtæki en ríkisstjórnir nágrannalandanna. Það var einfaldlega hægt að fylgjast með því í rauntíma. Auðvitað hlýtur það að hafa átt sinn þátt í því að atvinnuleysi jókst miklu meira á Íslandi árið 2020 en í nokkru öðru OECD-ríki. Auðvitað er það umhugsunarefni að á meðan ríkisábyrgð á lánum og almennum rekstrarstyrkjum var dælt út til milljóna fyrirtækja í Evrópu tók marga mánuði að gangsetja svoleiðis úrræði á Íslandi. Það var einfaldlega þannig að mörg af fyrstu úrræðunum sem voru kynnt virkuðu ekki þegar á hólminn var komið. Í upphafi var það kannski hlutabótaleiðin sem heppnaðist einna best, þökk sé þverpólitísku samstarfi í þinginu þegar frumvarpssmælkið sem kom frá félagsmálaráðuneytinu var útvíkkað og hlutabótaleiðinni breytt í meiri háttar björgunarnet fyrir atvinnulífið. Hvað gerðist svo strax sumarið 2020? Jú, þá var hert á öllum skilyrðum úrræðisins og þannig dregið úr virkni hlutabótaleiðarinnar. Afleiðingin var auðvitað sú að miklu lægra hlutfall vinnuafls á Íslandi var á hlutabótum 2020 en í öðrum Vestur-Evrópuríkjum. Við sjáum það t.d. í því að útgjöld til almennra atvinnuleysisbóta voru tvöfalt meiri en útgjöldin til hlutabóta hér á landi á meðan þessi hlutföll voru í hina áttina að jafnaði í þróuðum OECD-ríkjum. Sumarið 2020 var fyrirtækjum í rauninni beint af hlutabótaleiðinni. Hvað kom í staðinn? (Forseti hringir.) Jú, það sem ríkisstjórnin gerði var að kynna til sögunnar alveg ótrúlegt fyrirbæri sem ég er ekki viss um að eigi sér neina hliðstæðu (Forseti hringir.) í okkar heimshluta, sem eru uppsagnarstyrkirnir. (Forseti hringir.) Við munum halda áfram með þessa umræðu á eftir.