152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[15:59]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég leyfi mér að fullyrða að ekkert okkar átti von á því að tveimur árum eftir að kórónuveiran tók sér bólfestu hér á landi myndum við enn í dag vera á tímum mikilla sóttvarna, samkomutakmarkana og efnahagslegra björgunaraðgerða. En það er staðan og við því er lítið annað að gera en að halda haus og klára það verkefni sem sett var á okkar herðar. Ég hef sagt það áður að við sem þjóð getum vonandi litið um öxl í fyllingu tímans og verið tiltölulega sátt við þær aðgerðir sem farið var í hér á landi, hvort sem þær hafa verið efnahagslegar eða sóttvarnalegar. Efnahagslegar aðgerðir hafa skilað árangri. Um það eru til vitnis fjölmörg orð fólks, m.a. úr ferðaþjónustu og menningartengdum greinum, þar sem margir hafa á orði að úrræði stjórnvalda hafi skipt sköpum. Nú þegar við sjáum vonandi fyrir endann á þessum faraldri er mikilvægt að við skrúfum ekki fyrir kranann of snemma. Það er búið að dæla gríðarlegum fjármunum út úr ríkissjóði en á einhverjum tímapunkti verður að hætta því, enda er það ekki eðlilegt ástand til lengdar að atvinnulífið sé ríkisstyrkt að stórum hluta. Þá gerum við ráð fyrir því að atvinnulífið geti tekið við af fullum þrótti að skapa verðmæti fyrir samfélagið í heild eins og vera ber.

Mikilvægt skref var stigið í síðustu viku þegar Alþingi samþykkti frestun opinberra gjalda til haustsins og það var sömuleiðis mikilvægt þegar fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi því sem hér er til umræðu um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa þurft að sæta takmörkunum á opnunartíma. Eins og komið hefur fram er mikilvægt að við þann hóp fyrirtækja bætist hópur hótela og gistihúsa sem eru með vínveitingaleyfi og reka veitingaþjónustu samhliða sínum hótelrekstri. Góður gangur er í hagkerfinu að ferðaþjónustunni undanskilinni. Það skal samt ekki dregin fjöður yfir það að ekki hafa allir rekstraraðilar staðið af sér storminn þrátt fyrir kröftuga viðspyrnu ríkisstjórnarinnar og góðan vilja margra. Þetta var ljóst frá upphafi efnahagsaðgerðanna og engar falsvonir gefnar í því efni. Ung fyrirtæki með litla sjóði og ýmsir sem ekki hafa þolað herðingar og afléttingar sóttvarnaaðgerða til skiptis hafa því miður þurft að gefast upp. Það er þyngra en tárum taki og ég finn mjög til með því fólki.

Lífið er svo sannarlega ekki alltaf sanngjarnt og margt í þessum heimi sem við mannfólkið ráðum ekki við þrátt fyrir mikla getu að mörgu leyti. Ég þekki það sjálf, verandi alin upp í fjölskyldufyrirtæki, þar sem allir leggjast á eitt af lífi og sál við að halda draumnum gangandi, að fyrirtækið verður þá ekki bara einhver kennitala eða eitthvert hús þar sem einhver starfsemi fer fram og fólk mætir til vinnu af gömlum vana eða fyrirtæki sé apparat þar sem einhver digurbarkalegur karl situr á kontór og skeytir ekki um annað en að ávaxta sitt pund. Þegar fyrirtæki liðast í sundur kallar það sorg yfir marga og veldur mörgum óvissu og kvíða. Það getur verið högg fyrir byggðarlög og smitað út frá sér vítt og breitt. Sumir bera aldrei sitt barr aftur eftir gjaldþrot. Eftir því sem faraldurinn dregst meir á langinn þyngist róðurinn, líka hjá ríkinu sem hefur staðið sig vel í að vera með útrétta hjálparhönd eins og ég hef lýst en getur því miður ekki gripið alla. (Forseti hringir.) Þess vegna skiptir höfuðmáli að við verðum ekki hér með íþyngjandi hömlur stundinni lengur (Forseti hringir.) en bráðnauðsynlegt er. Það er nefnilega margt fleira en kórónuveiran (Forseti hringir.) sem ógnar heilsu og velferð fólks og íþyngir heilbrigðiskerfinu.

Hæstv. forseti. (Forseti hringir.) Það er löngu tímabært að líta af meiri þunga til slíkra þátta.

(Forseti (JSkúl): Forseti biður ræðumenn að virða ræðutíma.)