152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[16:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Frá upphafi faraldursins, sem sér loksins fyrir endann á, hefur markmið stjórnvalda verið að bregðast við jafnóðum. Undanfarin tvö ár hefur ríkisstjórnin sett á hinar ýmsu takmarkanir í eina eða aðra átt og lagt til ýmsar mótvægisaðgerðir. Það er langur listi: brúarlán, viðspyrnustyrkir, lokunarstyrkir, endurgreiðsla á virðisauka, frestun skattgreiðslna, útgreiðsla séreignarsparnaðar, greiðsluskjól lána, laun í sóttkví, ráðningarstyrkir, Hefjum störf, tekjufallsstyrkir, ferðagjafir, launaupplýsingafrestir, fjárfestingarátak, niðurfelling gistináttaskatts, markaðsátak ferðaþjónustu, einföldun fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja, tekjutengdar atvinnuleysisbætur og námsátak fyrir atvinnuleitendur. Ég er örugglega að gleyma einhverju en þetta er listinn eins og stjórnvöld setja hann sjálf fram á vefsíðu sinni um aðgerðir og ráðstafanir.

Ásamt því að bregðast við afleiðingum faraldursins jafnóðum var það einnig stefna stjórnvalda að vaxa út úr faraldrinum. Ég taldi það vera góða stefnu en stjórnvöld skulda okkur meira en að fara bara með frasann, að vaxa út úr vandanum. Stjórnvöld skulda okkur útskýringu á því hvernig þau ætla að fara að því vegna þess að fyrsta stefna þessarar ríkisstjórnar gerði ráð fyrir aðhaldsaðgerðum. Núverandi stefna gerir ráð fyrir því að skuldasöfnuninni vegna faraldursins ljúki 2026. Ég býst við því að það verði fyrr, einfaldlega vegna þess að við vanspáum ítrekað hagvexti og ofspáum samdrætti. Þó að það sé í takt við varfærnisviðmið laga um opinber fjármál þá breytir það ekki skyldu stjórnvalda til að útskýra vænt áhrif af stefnu stjórnvalda. Ég nefni þetta sérstaklega af því að það er ekki nóg fyrir stjórnvöld að treysta bara á að varfærnislega matið um framtíðarhorfur skili betri niðurstöðu en búist var við. Það er nefnilega staðan sem við erum með í dag. Við erum einfaldlega í betri stöðu af því að hagspár stóðust ekki en ekki út af aðgerðum ríkisstjórnarinnar, enda hafa þær margar tafist. Þó er ekki allt slæmt enda hefur stjórnarandstaðan stutt margar af tillögum ríkisstjórnarinnar til aðgerða gegn faraldrinum. En hefðu aðrar leiðir skilað betri árangri? Það er stór spurning.

Nú er hins vegar svo komið að ríkisstjórnin verður að útskýra framhaldið fyrir þingi og þjóð. Búist er við að árleg landsframleiðsla verði um 3–4% lægri en gert var ráð fyrir fyrir faraldurinn og þá er gott að muna að sú spá var væntanlega varfærnisleg. Hið sama á við um núverandi spá. Mín spá er að við munum ná þessum 3–4% fyrir lok ársins 2022 en það þýðir einnig að fyrri spá var vanáætluð um svipað mikið. Það er því frekar lélegur mælikvarði á stefnu stjórnvalda. Það sem stjórnvöld þurfa að útskýra, ef markmiðið er að vaxa út úr faraldrinum, er hvernig stefna stjórnvalda eykur landsframleiðslu um 3–4% umfram þessar spár. Eins og er eru slíkar útskýringar ekki til. Það eru ekki til útskýringar á því hvernig staðan hefði verið án faraldursins og hvernig viðbót stjórnvalda við þá stöðu skapar aðstæður fyrir okkur til að vaxa út úr vandanum. Eins og þetta lítur út frá mínum bæjardyrum séð ætla stjórnvöld bara að halda sjó og vona að þetta reddist. Til þess að hafa það á hreinu held ég að allt muni reddast en það er ekki það sama og stefnan að vaxa út úr vandanum, það er tvennt ólíkt.

Allan faraldurinn hefur ekki verið nein stefna nema að bregðast við jafnóðum. Það hefur valdið alls konar sveiflum og ófyrirsjáanleika. Yfirlýsta markmiðið hefur verið að vaxa út úr vandanum en það hafa bara verið orðin tóm. Stjórnvöld hafa ekki einu sinni reynt að útskýra, frekar en nokkuð annað, að ítrekað eru þing og þjóð skilin eftir í lausu lofti með einhverjar sóttvarnaaðgerðir og engar útskýringar um hvernig þær eiga að virka. Á sama tíma tala þingmenn, stjórnarliðar og ýmsir ráðherrar í kross hvert við annað um aðgerðirnar. Það er því ástæða til að efast um að það sé í raun og veru eitthvað til sem heitir alvöruplan um að vaxa út úr vandanum. Ég held að það séu bara innantóm orð. Auðvitað mun ríkisstjórnin aldrei viðurkenna það en hún getur afsannað það með því að sýna planið svart á hvítu. Og það er beinlínis skylda stjórnvalda þannig að ég bið ekki um mikið.