152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[16:08]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir að flytja okkur hér skýrslu um efnahagslegar ráðstafanir vegna kófsins, en svo kýs ég að kalla það. Það er einlæg von mín og trú, sem og líklega allra sem hér sitja inni, að þokunni fari létta og við munum stíga út úr þessum faraldri með hækkandi sól. Við höfum lifað á efnahagslega viðkvæmum tímum síðustu tvö ár, en þrátt fyrir það stöndum við ótrúlega sterk miðað við margar aðrar þjóðir. Árangur okkar vekur eftirtekt á heimsvísu. Áherslan á að verja hagkerfið, meginstoðir þess, heimili og fyrirtæki ásamt því að halda hagkerfinu gangandi líkt og hægt er í gegnum faraldurinn, hefur skilað árangri. Við brugðumst rétt við. Líkt og hæstv. ráðherra kom inn á hafa stuðningsaðgerðir ríkissjóðs átt ríkan þátt í því að samdrátturinn varð ekki meiri árið 2020. Án þeirra hefði viðspyrnan á síðasta ári ekki náð flugi. Þá horfum við á að atvinnuleysi er mun minna en spár gerðu ráð fyrir, sem er afar dýrmætt. Útlit er fyrir að létt verði á sóttvarnaaðgerðum og var ráðist í stórar aðgerðir núna í morgun í afléttingum, en þangað til fullri afléttingu er náð erum við enn og aftur að leggja fram úrræði til að koma fyrirtækjum út úr síðasta brimskaflinum.

Við erum sterk þjóð. Seiglan og úthaldið hefur haldið okkur gangandi í gegnum aldirnar og það má segja að við séum svolítið eins og íslenska handboltalandsliðið, við gefumst ekki upp þótt á móti blási. Þess vegna ætlum við að búa til öfluga viðspyrnu á komandi mánuðum. Um leið og veiran fjarar út mun verða hér öflugur hagvöxtur fljótlega aftur. Ísland og íslensk þjóð hefur alla burði til að koma sér hratt af stað. Við eigum gríðarlegan mannauð, öflug fyrirtæki, fallegt land sem er ríkt af auðlindum ásamt því að búa yfir krafti til nýsköpunar. Markmiðið hefur ávallt verið að verja heilsu þjóðarinnar, grunnstoðir samfélagsins, vernda afkomu fólks og fyrirtækja og tryggja öfluga viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf. Við sjáum nú að þessum markmiðum hefur að mestu verið náð. Það er ekkert sjálfgefið. Því getum við horft jákvæð fram á við.